landmælingar og grunnkortagerð.
Frú forseti. Varnaðarorð þingmanna Vinstri grænna í júní 2006 rættust af því að sú nýsköpun sem frá er greint í skýrslu Landmælinga átti sér stað eftir að ráðherra Vinstri grænna hafði opnað gögnin. Nú erum við einungis að stíga það skref að festa þá opnun lögformlega í sessi. Það að loka gögn Landmælinga bak við gjaldmúr var pólitísk ákvörðun árið 2006, það að opna þau 2013 var sömuleiðis pólitísk ákvörðun. Það sem ég held kannski að vinni með þessu máli er að fólk lítur aðgang að upplýsingum öðrum augum í dag en það gerði 2006. Þessi varnaðarorð Kolbrúnar Halldórsdóttur og Ögmundar Jónassonar á sínum tíma, sem byggðu á því einfalda prinsippi vinstri manna að almannaeigur eigi að vera almenningi aðgengilegar þegar því er við komið, eru sjónarmið sem hafa sótt á, ekki síst vegna þess að framþróun í tækni hefur gert miðlun slíkra upplýsinga ódýrari og auðveldari. Núna munar Landmælingar ekki jafn mikið um að dæla fjórum terabitum af gögnum út í eterinn eins og kannski hefði verið árið 2006, en tækniþróunin er líka orðin það mikil að nýsköpunarfóðrið í þessum gögnum er meira nú en nokkru sinni fyrr.