146. löggjafarþing — 63. fundur,  4. maí 2017.

einkavæðingaráform ríkisstjórnarinnar.

[11:11]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það þarf ekkert að koma á óvart þó að ráðherra Sjálfstæðisflokksins einkavæði í skjóli nætur og passi sig svo á að vera í útlöndum þegar fréttirnar koma. Þeir sem hlýddu á mál hæstv. forsætisráðherra Bjarna Benediktssonar og formanns Sjálfstæðisflokksins á ársfundi Samtaka atvinnulífsins skilja samhengið. Þar barmaði formaður Sjálfstæðisflokksins og hæstv. forsætisráðherra sér yfir því og vældi undan því hvað væri þungt fyrir fæti með einkavæðingu og einkarekstur. Það þyrfti bara viðhorfsbreytingu hjá þjóðinni, sagði ráðherrann. Hann efaðist ekki um stefnuna. Sjálfstæðisflokknum kemur það ekkert við þó að almenningur í landinu og þjóðin vilji ekki þetta einkavæðingarbrölt. Það er samt haldið áfram. Þetta er svona. Mantran bara ræður, trúarsetningin blífur og þó að þjóðin vilji þetta ekki þá skal samt haldið áfram, jafnvel þó að þurfi að gera það í skjóli nætur. Það áhugaverða hér og nú er: Hvað segja fylgitunglin, Viðreisn (Forseti hringir.) og Björt framtíð? Voru þau kosin til þess að gera Sjálfstæðisflokknum þetta kleift?