Evrópuráðsþingið 2016.
Forseti. Ég þakka svarið. Ég veit að þetta er í traustum höndum hjá hv. þingmanni. Mig langar að draga athygli þingmannsins, sem og annarra sem á þetta hlusta, að ályktun sem samþykkt var í Strassborg 10.–14. október 2016:
„Í ályktun um þann lærdóm sem draga mætti af Panama-skjölunum mæltist þingið til þess að aðildarríki tryggðu skilvirka eftirfylgni ályktunar þingsins nr. 1881 frá árinu 2012 um viðeigandi stefnu um skattaskjól, gerðust aðilar að vettvangi Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu um gagnsæi og skipti á skattaupplýsingum og tryggðu skjóta og skilvirka framkvæmd staðals um upplýsingaskipti og sjálfvirka miðlun upplýsinga um fjárhagsreikninga í skattamálum. Jafnframt var mælst til þess að aðildarríki sæju til þess að skattkerfi þeirra væru traust, gagnsæ og stöðug, settu á laggirnar miðlæga skrá yfir raunverulega eigendur fyrirtækja, stofnana og sjóða og ættu í nánu samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Sameinuðu þjóðirnar og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að bæta núverandi skattafyrirkomulag og takast á við nýtilkomnar áskoranir á þessu sviði. Einnig voru aðildarríki beðin um að verja meira fjármagni í skattrannsóknir, efla þjálfun í rannsóknum á skattundanskotum og íhuga þörfina á lagabreytingum til að samræma betur aðgengi að fjármálaupplýsingum á frumstigi sakamálarannsókna.“
Þetta er eitthvað sem ég held að við þingmenn hér á hinu háa Alþingi ættum að skoða og álagsprófa, hvar við stöndum út frá ályktunum frá árinu 2012. Ég held að það væri mjög góð leið til að framfylgja sumum af þeim ályktunum sem hafa komið fram hjá Evrópuráðinu og öðrum alþjóðanefndum að kalla eftir skýrslubeiðni. Þá er jafnframt hægt að fá ályktunina þýdda yfir á íslensku, því að ég hef áhyggjur af því að eiginlega ekkert af þeim ályktunum og ábendingum og tilmælum sem við tökum þátt í að samþykkja og jafnvel búa til ratar yfir á hið íslenska tungumál.