146. löggjafarþing — 64. fundur, 9. maí 2017.
beiðni um að þingmenn dragi mál til baka.
Virðulegi forseti. Ég mótmæli harðlega þessari aðferðafræði að samhliða störfum samráðshóp um sjávarútveg megi ekki ræða aðra þætti fiskveiðistjórnar. Það að mál fái ekki brautargengi úr nefnd vegna þess ætlaða samráðs er ekkert annað en tálmun frá varðhundum valdsins til að vernda þetta úr sér gengna kerfi og tálma raunverulegar úrbætur í fiskveiðistjórninni.