fjármálaáætlun og nýting skattfjár.
Frú forseti. Ég hef oft áður lýst ánægju minni með hæstv. fjármálaráðherra þegar hann hefur komið upp og gefið skýr svör. Því er ekki að heilsa núna. Þetta eru ekki skýr svör. Hefur ráðherra aðgang að þessum upplýsingum? Hann kinkar kolli, hann hefur aðgang að þessum upplýsingum. Þá vil ég fá að vita hvort við í þinginu, sem þurfum að taka ákvörðun, höfum það líka. Ég skil alveg að þetta er rammi, ég skil alveg út á hvað þetta gengur. Það er verið að setja stóran ramma og svo er verið að þrengja þennan ramma og innan þess ramma eigum við svo að setja fjárlög í haust. Þannig á þetta að virka. En við vitum ekki á hverju þessu rammi byggir. Hvaða verkefni eru inni í þessum ramma? Hvað megum við gera, hvað á að gera við það sem er innan þessa ramma? Við eigum að samþykkja ramma en við vitum ekki hvaða gögn liggja að baki honum. Ráðherra hefur aðgang að þessum gögnum. Við höfum ekki aðgang að þeim. Ef við höfum ekki aðgang að þessum gögnum getum við ekki tekið upplýsta ákvörðun um fjármálaáætlun, það er ómögulegt. Það er það sem við erum að biðja um. Ítrekaðar umræður hafa verið um þetta í nefndum. Þetta viljum við fá. Okkur finnst réttmætt að þingið fái þessar upplýsingar til að geta tekið upplýsta ákvörðun. (Forseti hringir.)
Spurningin til ráðherra er: Vill ráðherra, ef við spyrjum í formlegri fyrirspurn, gefa okkur aðgang að þessum upplýsingum?