auknar álögur á ferðaþjónustu.
Virðulegi forseti. Það er skoðun mín að fjármálastefnan hafi verið of stíf og stjórnarandstaðan öll greiddi því atkvæði gegn henni. Nú erum við með fjármálaáætlun sem helgast þá af þessari stífu stefnu. Það vantar tekjur. Ríkisstjórnin veltir því fyrir sér að leggja á veggjöld og hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna eða hluta hennar. Báðum þessum tillögum hefur verið hafnað af almenningi í landinu enda voru þær ekki ræddar fyrir kosningar. Þær koma bara á dagskrá núna.
Nú berast fréttir af því varðandi virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna að stemning fyrir Íslandsferðum sé að daprast. Ferðaheildsalar koma hér og segja að mörgum þyki landið dýrt, hentugra sé að fara annað, afpantanir hafa borist og einnig heyrast þær fréttir daglega að uppbyggingu hafi verið slegið á frest. Ég hygg að þetta muni koma frekar niður á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu. Ég held líka að það sé engum blöðum um það að fletta að ferðaþjónustan sé einn mesti stuðningur sem landsbyggðin hefur fengið á síðari árum.
Því langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra tveggja spurninga: Telur hann að fyrirhuguð hækkun á virðisaukaskatti muni stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið og tryggja þar af leiðandi landsbyggðinni aukinn hlut? Samhliða því að boðuð var hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna var rætt um, m.a. af hæstv. ráðherra, að fara ætti í svokallaðar mótvægisaðgerðir. Nú styttist í þinginu og við þurfum að fara að greiða atkvæði um fjármálaáætlunina og þessa tillögu. Því spyr ég: Í hverju felast þessar mótvægisaðgerðir? Hafa verið gerðar greiningar á því? Það var gagnrýnt að engar eða litlar greiningar hefðu verið gerðar á því þegar hækkunin var lögð á. Hafa verið gerðar greiningar á því í hverju mótvægisaðgerðirnar þurfa að felast, hversu háar þær eru og þá hversu mikill hluti af þeirri tekjuaukningu sem ríkisstjórnin ætlar sér með þessu fer til baka í mótvægisaðgerðir?