146. löggjafarþing — 64. fundur,  9. maí 2017.

innviðauppbygging á landsbyggðinni.

[14:38]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka frummælanda, hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, kærlega fyrir að hefja þessa umræðu. Hún er einkar mikilvæg og ég þakka ráðherranum fyrir svörin, eins langt og þau ná. Við höfum eytt undanförnum vikum í þinginu í að fjalla um eitt allra mikilvægasta plagg sem hver og ein ríkisstjórn leggur fram, sem er ríkisfjármálaáætlun. Þar undir er fjallað m.a. um innviðauppbyggingu, sem svo sannarlega var mikið rætt um í aðdraganda kosninga og allir flokkar lögðu áherslu á mikilvægi þess að byggja upp innviði eftir þau mögru ár sem við höfum öll farið saman í gegnum eftir hrun.

Það verður að viðurkennast að það hafa verið vonbrigði að fara í gegnum áætlunina og það sem snýr að skorti á heildarsýn og stefnu í því hvernig við viljum forgangsraða þegar kemur að innviðauppbyggingu. Ráðherrann fer með sveitarstjórnarmálin og hann er með samgöngumálin og þess vegna er mikilvægt að huga að byggðamálum. Eitt af því sem ég myndi vilja hvetja ráðherrann til að huga að næst þegar ríkisfjármálaáætlunin kemur fram er að sveitarfélögin, ekki hvað síst landshlutasamtökin, verði studd í því að leggja fram samhliða, og það verði hluti af fjármálaáætluninni, gögn um þá innviðauppbyggingu og þær fjárfestingar sem eru fyrirhugaðar í hverjum landshluta fyrir sig. Það hlýtur að vera þannig að þó að við séum með mikla þenslu á suðvesturhorninu og þurfum hugsanlega aðeins að draga úr þeim fjárfestingum sem við stöndum frammi fyrir geti staðan verið allt önnur í öðrum landshlutum, eins og í Norðausturkjördæmi eða Norðvesturkjördæmi. Þess vegna er mikilvægt að fjármálaáætlunin endurspegli þetta, þannig að ekki sé dregið saman í þeim landshlutum sem þurfa (Forseti hringir.) einmitt á uppbyggingu að halda vegna þess að það er einfaldlega verið að byggja of mikið af hótelum eða hugsanlega jafnvel opinberum byggingum á suðvesturhorninu.