innviðauppbygging á landsbyggðinni.
Herra forseti. Þetta er býsna upplýsandi umræða í aðdraganda afgreiðslu fjármálaáætlunar. Fyrir kosningar var beinlínis öskrað á aðgerðir í vegamálum og innviðauppbyggingu og gárungarnir kölluðu jafnvel kosningarnar innviðakosningar. Það var enginn flokkur undanskilinn þegar kom að loforðum um stórkostlega uppbyggingu ef þeir kæmust til valda. Það kom því nokkuð á óvart þegar stjórnarsáttmálinn var kynntur að þar var mjög lítið af hugmyndum um tekjuöflun til þess að fylgja því eftir. Mánuði síðar kom þó fram hugmynd um að fjármagna vegabætur með vegtollum, sú uppbygging yrði fyrst og fremst á suðvesturhorninu en það er auðvitað ekkert útséð með þá hugmynd enn þá. Næst kom, öllum að óvörum, mest þó ferðaþjónustunni og þingflokki Sjálfstæðisflokksins, áætlun um að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Sú breyting er reyndar ein af meginforsendum fjármálaáætlunarinnar þó að ekki sé víst að hún njóti meiri hluta á þingi. Það kemur í rauninni ekki í ljós fyrr en hálfu ári eftir að fjármálaáætlun verður væntanlega samþykkt núna í vor. Það er dálítið kaldhæðnislegt. Það hefði verið lágmarkskrafa, þegar menn ráðast í slíka tekjuöflun, að henni hefðu fylgt áform um hvernig tekjum á að verja og skipta og að það ætti þá að nýta þær í uppbyggingu á innviðum um land vegna þess að þeir eru ýmist vanbúnir, hættulegir eða eru að grotna niður. Það er þó engin skýr áform að finna um það í áætluninni og það er auðvitað ekki að undra að landsmenn gapi bara yfir vandræðaganginum.
Í fjármálaáætluninni birtist líka mjög barnaleg sýn á veruleikann. Þekktust er líklega staðhæfingin um að frelsi sé andstæða skatta. Þar má einnig lesa að uppbygging sé andstæða sparnaðar og það er líka mjög heimskuleg ályktun. Raunar má leiða líkur að því að í nauðsynlegri uppbyggingu á grotnandi, vanbúnum og hættulegum innviðum geti falist mikill sparnaður þegar fram í sækir. (Forseti hringir.) Og nú á ríkisstjórnin að hífa upp um sig brækurnar og gera eitthvað í þessu máli.