146. löggjafarþing — 64. fundur,  9. maí 2017.

skógar og skógrækt.

407. mál
[16:57]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég fagna þessu frumvarpi. Ég held að það sé alveg tímabært og get tekið undir með höfundum frumvarpsins eða greinargerðarinnar að samræmd heildarendurskoðun á lagaumgjörð um skógrækt er alveg tímabær þó svo að uppistöðu til hafi skógræktarlög frá því ágæta herrans ári 1955, það er nú mjög góður árgangur almennt, bæði í mannfólki og bílum og skógræktarlögin eru sama marki brennd, þau hafa staðist ágætlega tímans tönn. Það hefur ýmislegt breyst síðan. Bæði var nú bætt við þau lög og síðan bættist við löggjöf um skógrækt á lögbýlum og fleira sem menn hafa síðan sameinað í þessa nýju stofnun, Skógræktina. Ég held að það sé mjög eðlilegur lokahnykkur ef við segjum svo á endurskipulagningu þessara mála að ný heildarlöggjöf um skógrækt komi nú. En það þarf að vanda það verk vel og taka nýja hluti sem hafa öðlast stóraukið vægi eins og loftslagsbreytingar og fleira inn í þá mynd sem auðvitað er viðleitni til hér í textanum.

Í fyrsta lagi fagna ég því að þetta mál skuli komið á dagskrá og komið á þennan rekspöl að hér erum við með frumvarp til laga um heildarendurskoðun á borðinu þó svo að málið komi ansi seint fram á þessu vori til þess að góður tími sé til að gaumgæfa það ef menn leggja áherslu á afgreiðslu þess nú.

Það gefur líka tilefni til að ræða ýmislegt fleira í samhenginu og þó svo að í framhaldinu sé boðuð gerð landsáætlunar um skógrækt og að sjálfsögðu þarf þá að vinna hana, þá held ég að sé ágætt að fá tækifæri til þess að ræða aðeins við hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra í tengslum við framlagningu þessa máls, t.d. og ekki síst um það hvaða hlut hæstv. ráðherra sér fyrir sér að skógrækt leiki á komandi árum í aðgerðum Íslands til þess að mæta skuldbindingum sínum á sviði loftslagsmála. Nú hefur nýlega verið upplýst að unnin verði sérstök aðgerðaáætlun á þessu ári. Á dögunum var undirritað samkomulag sex ráðuneyta þar um, sem allt er eðlilegur ágætur undirbúningur, en inn í það þurfa að koma efnislegir þættir. Nú vill svo til að hið háa Alþingi er að fjalla um fjármálaáætlun til næstu fimm ára í þessum töluðum orðum. Við höfum verið að leita að því sum hvar þess sér stað í útgjaldarömmum fyrir verkefni á sviði umhverfis- og auðlindamála, að nægilegir fjármunir verði lagðir á komandi árum í það sem til þarf. Þó að við sleppum því í þessari umferð að ræða orkuskipti eða annað slíkt en höldum okkur við skógræktina, þá hlýtur maður auðvitað einfaldlega að spyrja: Hvaða hlutverk sér hæstv. ráðherra fyrir sér að skógrækt, efld skógrækt, leiki til bindingar gróðurhúsalofttegundum, ásamt með því um leið að menn mæti öllum öðrum markmiðum sem um skógrækt eru? Það fer að sjálfsögðu saman, og er efniviður í það í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Ég batt satt best að segja vonir við það þegar Parísarsamkomulagið var að fæðast að menn myndu þá strax nota tækifærið og slá margar flugur í einu höggi með því að gera metnaðarfulla áætlun í samráði við bændur og landeigendur jafnvel þannig að hún yrði hluti af eða fylgifiskur með búvörusamningum eða samningum ríkisvaldsins og bænda um málefni og starfskjör landbúnaðarins. Ég hefði talið algerlega upplagt að gera það og ráðstafa í gegnum slíkan samningsbundinn farveg verulega auknum fjármunum í skógrækt á lögbýlum. Það er held ég mjög vænleg leið til þess að stórefla skógræktina. Stærstur hluti þess sem gerst hefur síðastliðin 25 ár hefur verið í gegnum Héraðsskóga, nytjaskóga og landshlutaskógræktarverkefnin sem fóru af stað hvert af öðru í kjölfar þess að Héraðsskógaáætlunin fór af stað árið 1990 á Héraði.

Þegar best lét var umtalsverð plöntun í þessum verkefnum og miðaði talsvert áfram, en síðan hefur því miður mun minni fjármunum verið varið hin seinni ár, þannig að hægt hefur verulega aftur á þeirri uppbyggingu skógarauðlindanna sem var komin á þó nokkurn rekspöl. Við sjáum það í dag, m.a. á því hvað elsti hluti þessara skógræktarverkefna er farinn að gefa af sér, hversu grætilegt það er að menn skyldu ekki geta haldið áfram af meiri krafti. Alveg eins verður það aftur eftir 25 eða 30 ár að þá munu menn að sjá afraksturinn af því sem við gerum á þessum árum í alla vega fyrstu grisjun og fyrstu nytjum úr skógunum.

Það styttist líka í það að skógarauðlindin hér verði fullburðug í þeim skilningi að eiginlegir nytjaskógar til timburframleiðslu komi til sögunnar í stórauknum mæli. Sú vinnsla er að sjálfsögðu hagkvæmari og gefur betur af sér eftir því sem auðlindin er stærri og sterkari og það skapar miklu betri grunn undir raunverulega sjálfbæra og arðsama nýtingu að byggja auðlindina þannig upp og sem endurnýjanlega auðlind. Það er tiltölulega létt verk að viðhalda skógarauðlind sem einu sinni er búið að byggja upp. Þetta gerðu bæði nálæg lönd og fjarlæg fyrir kannski 50–100, 120 árum og búa nú að í raun og veru viðvarandi auðlind sem er tiltölulega ódýrt að viðhalda með plöntun í staðinn fyrir það sem fellt er. Sumar þjóðir gripu til þess ráðs í kreppunni miklu að skapa atvinnu með því að fara í mikla útplöntun á nytjaskógum. Það gerðu t.d. Nýsjálendingar hinum megin á hnettinum. Þar er nú að vísu loftslag mjög gott og skógar vaxa hratt, en þeir eiga gríðarlega skógarauðlind frá m.a. árunum upp úr heimskreppunni miklu og áratugunum þar á eftir sem hefur orðið að blómlegri atvinnugrein þar í landi. Ég held að það þurfi ekki að þræta um það lengur að á Íslandi eru aðstæður, a.m.k. eins og loftslag þróast nú með hlýnun, til þess að við getum byggt upp mjög öfluga sjálfbæra skógarauðlind.

Það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt að um þetta allt saman sé vel búið. Að því leyti er landsáætlunin mjög mikið framfaraskref; að gera heildstæða, vandaða áætlun þar sem valið er land til skógræktar að teknu tilliti til náttúruverndar, minjaverndar, landslags og annarra hluta, þar sem passað er upp á náttúruskógana og líffræðilegan fjölbreytileika í þeim og hugað að öllum þessum málum í sameiningu. Skógrækt í samhengi við loftslagsbreytingar á að vera einn af liðum landsáætlunarinnar, kannski einn af burðarásunum ef vilji manna stendur til að leggja myndarlega fjármuni í það á komandi árum að byggja upp skógarauðlindina ásamt með öðrum aðgerðum á sviði landgræðslu og endurheimt landgæða, endurheimt votlendis o.s.frv.

Mér segir svo hugur að aðgerðir á þessu sviði séu væntanlega einhverjar þær hagkvæmustu sem við getum ráðist í hvað það snertir. Þar með leggjum við ekki bara okkar af mörkum og uppfyllum okkar markmið á sviði loftslagsmála, heldur erum við að fjárfesta í framtíðarauðlind í leiðinni sem á að geta gefið mikið af sér. Það er ekkert endilega alls staðar í boði þegar við förum að velja okkur viðfangsefni til þess að reyna að ná okkar markmiðum fram í loftslagsmálum. Í sumum öðrum tilvikum getur það orðið býsna dýrt að ná tilsettum árangri. Ég tala nú ekki um t.d. ef að einhverju leyti væri farið út í niðurdælingu á koltvísýringi á komandi árum o.s.frv., sem í sjálfu sér byggir ekki upp neina auðlind nema einhvers staðar djúpt ofan í jörðinni og tvísýnt er um að unnin verði í tímans rás.

Mig langar að staldra við það sem hæstv. ráðherra kom inn á og er fjallað aðeins um í greinargerð sem snýr að samhengi laga um skógrækt og landgræðslu. Þar er komið inn á heita kartöflu sem oft hefur svifið yfir vötnum í umræðum um þessi mál sem er möguleg sameining Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Ég ætla að sjálfsögðu ekki að taka neina óumbreytanlega og endanlega afstöðu til þess, en hef alltaf hvatt til þess að menn stígi varlega til jarðar í þeim efnum, en byggðu betur upp samstarf þessara stofnana. Þetta eru í eðli sínu systurstofnanir, en þær eru báðar með sínar höfuðstöðvar á landsbyggðinni, Landgræðslan í Gunnarsholti og Skógræktin á Héraði og eru mjög mikilvægar svæðisstofnanir sem slíkar. Það finnst mér auðvitað vera nákvæmlega eins og á að vera. Það væri eiginlega undarlegt ef starfsemi af þessu tagi þyrfti endilega að vera með höfuðstöðvar sínar í Reykjavík. Ég tel að flutningur Skógræktarinnar austur á Hérað hafi heppnast vel, byggt upp sterkt umhverfi þar og er tengt þeirri miklu skógrækt sem þar fór af stað um svipað leyti, en þannig háttar einmitt til að Héraðsskógaverkefnið var á sínu fyrsta ári þegar höfuðstöðvar Skógræktarinnar fluttust austur á land. Menn hafa m.a. haft áhyggjur af því að ef þessum stofnunum yrði slengt saman þá gæti dregið úr þrótti starfseminnar á öðrum hvorum staðnum. En auðvitað eru það ekki sjónarmið sem eigi ein að ríkja yfir öllu og ráða. Ég hygg hins vegar að það sé skynsamlegt að vinna í rólegum skrefum að því að samþætta þetta betur eftir því sem efni standa til.

Hér er að sjálfsögðu áfram inni í lögunum kafli um skógrækt á lögbýlum sem mér sýnist efnislega vera í grófum dráttum óbreyttur rammi um þann hluta málsins en komi hér inn í þessa löggjöf. Með sameiningunni undir Skógræktina þá er auðvitað eðlilegt að þetta sé á einum stað í lagasafninu. Það er ákaflega mikilvægt að áfram sé reynt að hafa mikið og gott samstarf við bændur, við samtök þeirra og við landshlutana, samanber það að gerðar verði síðan á grundvelli landsáætlunar sérstakar framkvæmdaáætlanir í hverjum landshluta þar sem viðkomandi sveitarfélög, skógarbændur og hagsmunaaðilar koma við sögu og geta haft áhrif á útfærslu stefnunnar. Ég vona að það haldi áfram í góðum anda hér eftir sem hingað til.

Nú þekki ég ekki hvort verið er að breyta einhvers staðar einhverjum römmum í sambandi við fjárhagslegan stuðning eða fyrningar á framlögum og annað í þeim dúr. Það væri fróðlegt að heyra ef menn sæju ástæðu til einhverra breytinga í þeim efnum. En ég hef almennt ekki heyrt kvartað undan þeim ákvæðum eins og er í dag. Það eina sem maður heyrir alltaf er að það sé veittir of litlir fjármunir til þess að hægt sé að hafa þrótt í þessari starfsemi. Það er t.d. alveg ljóst að það er stærðarhagkvæmni í plöntuframleiðslunni. Það er óhagkvæmt að draga hana jafn mikið niður og gert hefur verið undanfarin ár. Það væri hægt að ná fram verulegum sparnaði í einingarverði ef aðstaða til plöntuframleiðslu væri betur nýtt eða fullnýtt og ríkið fengi þá betri tilboð.

Í það heila tekið líst mér vel á málið. Ég sé að vísu, frú forseti, að það á að fella úr gildi lög um skógræktardag skólafólks, nr. 13/1952. Ég er ekki alveg gagnkunnugur þeim ákvæðum, en mér finnst áhugavert að sjá þessa fyrirsögn að um þetta hafi einhvern tímann verið sett lög. Væri fróðlegt að vita hvað tapast með því að þessi ákvæði falli úr lagasafninu. Stundum gætir óþarflega mikillar hreinsunaráráttu þegar verið er að endurskoða lög og kvað svo rammt að því um tíma að menn vildu fara meira og minna að hreinsa út úr lagasafninu það sem eftir stóð af ákvæðum Jónsbókar í lögunum, en þá tóku menn til varna hér á þingi og tókst að afstýra því slysi. Stundum þarf að passa upp á það að það sé ekki að ástæðulausu verið að hreinsa út gömul lagaákvæði ef þau eru ekki fyrir neinum.

Þetta var nú það sem ég ætlaði að segja í fyrstu ræðu minni, frú forseti.