146. löggjafarþing — 64. fundur,  9. maí 2017.

skógar og skógrækt.

407. mál
[17:37]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að koma í veg fyrir neitt sem tengist Eurovision, svo ég ætla ekki að orðlengja hér meir. En ég fagna því sem ráðherrann segir; ef við getum mörg hugsað okkur að endurskoða stofnanafjöldann á Íslandi og búa til öflugri og betri stofnanir sem sjá um afmarkaða þætti þá er það mjög ánægjulegt.