skipulag haf- og strandsvæða.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla ekki í þessu andsvari að gerast mikill spádómsmaður um framgang þingstarfa hér eftir samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Það ræðst auðvitað af ýmsum þáttum, öðrum málum sem hér eru til umfjöllunar. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um þetta frumvarp og ég ánægður að heyra að hann tekur í andsvari sínu undir þær vangaveltur sem ég hef varðandi hvað það hvað vert væri að skoða í frumvarpinu og öðru slíku. Ég legg til að við einbeitum okkur að því skoða efnisatriði málsins. Svo er það annarra, ekki eingöngu mín eða hv. þingmanns, að sjá hvað vinnst tími til að gera.