um fundarstjórn.
Frú forseti. Fyrr í dag óskaði félagsmálaráðherra eftir því að við veittum máli sem hér er á dagskrá afbrigði svo það kæmist á dagskrá þrátt fyrir að vera lagt fram of seint, sem sagt eftir skilafrest þingmála. Það gerðum við. Í anda góðs samstarfs hér á þingi veittum við þessu máli afbrigði úr því að það liggur svona mikið á því. Hér erum við tilbúin að ræða þetta mál. En nú berast þau tíðindi varðandi mál nr. 13 á dagskrá, um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja um eftirlit á vinnumarkaði o.fl., að hæstv. ráðherra hafði ekki tíma til að mæla fyrir því fyrr en klukkan níu. Mér finnst nú flýtir ríkisstjórnarinnar orðinn hálf furðulegur þegar hér er sótt um afbrigði fyrir málum, sem er ekki sjálfgefið að fáist. En síðan eru ráðherrar ekki einu sinni reiðubúnir að mæla fyrir þeim þegar að þeim kemur.
Frú forseti. Ég legg til að hlé verði gert á fundinum þar til hæstv. ráðherra getur mætt í hús og mælt fyrir málinu. Það er náttúrlega ekki hægt að framgangur mála sé með þessum hætti.