um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég er hér í óðaönn að reyna að finna ákvæði um breytt vinnubrögð í stjórnarsáttmálanum. Finn það ekki í augnablikinu, það er kannski táknrænt. [Hlátur í þingsal.] Allt gengur þetta út á gott skipulag hér — (Gripið fram í.) það var blekið sem eyddist, já — og gott vinnulag. Og hér hafa verið boðuð ný vinnubrögð og önnur umgengni við þingsköpin. Ef ég man rétt, því að einhvern tíma las ég þennan stjórnarsáttmála, stendur þar að þessi ríkisstjórn ætli sér að vinna að því að efla traust, meðal annars á Alþingi. Gera lagasetninguna vandaðri og tryggja að öll sjónarmið komist þar að. Það var í þeim anda sem við samþykktum þessi afbrigði hér í dag. (Forseti hringir.) Ég verð að segja að það er ekki boðlegt, ef það er svo að þetta hefur legið (Forseti hringir.) ljóst fyrir frá því síðdegis. Ég óska eftir upplýsingum um hvenær það lá fyrir að ráðherrann (Forseti hringir.) ætlaði ekki að mæta samkvæmt dagskrá.