réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja o.fl.
Frú forseti. Áður en ég hef framsögu um þetta mikilvæga mál sem í heildina er mjög gott og mikið framfaraskref fyrir vinnumarkaðinn og starfsfólkið, bæði erlenda sem innlenda starfsmenn, langar mig sérstaklega að biðjast afsökunar á því að hafa ekki komið fyrr. Ég var búin að láta vita hvenær ég gæti verið hér í þinginu. Það er búið að boða að við ætlum að vera með þingfund fram að miðnætti. Ég var að sjálfsögðu reiðubúin að vera hér frá 9–12 í kvöld og var búin að gera ráðstafanir út frá því en finnst leiðinlegt að misskilningur hafi orðið og tek það algerlega á mig. Þetta er algerlega á mína ábyrgð og ég bið þingheim innilegrar afsökunar á þessu. Ég komst bara því miður ekki fyrr.
En það er best að hefja framsöguna í þessu mikilvæga og brýna máli þar sem ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Í ljósi þess hversu langt heiti laganna er hafa þau stundum í almennu tali verið nefnd lög um útsenda starfsmenn og mun ég nýta mér það til styttingar í máli mínu.
Samhliða þeim breytingum sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á ákvæðum fyrrnefndra laga um útsenda starfsmenn eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á ýmsum öðrum lögum sem gilda á innlendum vinnumarkaði, ekki síst til að gæta samræmis þegar kemur að eftirliti á vinnumarkaði. Frumvarpið var unnið í samráði við Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun. Megintilgangur frumvarpsins er innleiðing tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um framfylgd eldri tilskipunar um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og fleira. Markmið frumvarpsins er að veita íslenskum stjórnvöldum betri yfirsýn yfir stöðuna á innlendum vinnumarkaði að því er varðar starfsemi erlendra þjónustuveitenda, þar með talið starfsmannaleigna hér á landi sem og fjölda og stöðu erlendra starfsmanna er starfa hjá slíkum fyrirtækjum. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga. Þetta er brýnt og mikið réttindaskref fyrir ákveðna hópa. Enn fremur er markmiðið að styrkja það eftirlit sem tíðkast á íslenskum vinnumarkaði þannig að koma megi í veg fyrir að útsending erlendra starfsmanna hingað til lands til að veita hér þjónustu og starfsemi starfsmannaleigna hér á landi leiði til félagslegra undirboða.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir ríkari upplýsingaskyldu erlendra þjónustuveitenda, þar með talið starfsmannaleigna og sjálfstætt starfandi einstaklinga, en samkvæmt gildandi lögum, svo sem hvað varðar efnahagslega starfsemi hlutaðeigandi í heimaríki en slík starfsemi er forsenda þess að heimilt sé að veita þjónustu yfir landamæri á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Í þessu sambandi er í frumvarpinu jafnframt gert ráð fyrir auknu samstarfi Vinnumálastofnunar við þar til bær stjórnvöld í heimaríki hlutaðeigandi þjónustuveitanda, meðal annars þegar kemur að því að sannreyna hvort erlendur þjónustuveitandi sé sannanlega með efnahagslega starfsemi í heimaríkinu. Gert er ráð fyrir að þær stofnanir sem hafa eftirlit á vinnumarkaði geti miðlað upplýsingum sín á milli verði þær áskynja um upplýsingar sem kunna að vera nauðsynlegar í þágu eftirlits með lögum sem gilda um störf á innlendum vinnumarkaði í því skyni að koma í veg fyrir brot á ákvæðum laga og kjarasamninga, enda séu upplýsingarnar nauðsynlegar í þágu eftirlits viðkomandi stjórnvalds.
Það er lagt til að Vinnumálastofnun verði heimilt að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki, þar með taldar starfsmannaleigur sem veita stofnuninni ekki upplýsingar og/eða eftir atvikum aðgang að gögnum sem og í þeim tilvikum þegar stofnuninni hafa verið veittar rangar eða ófullnægjandi upplýsingar óháð því hvort um ásetning eða gáleysi hefur verið að ræða.
Er þetta lagt til í því skyni að tryggja eins vel og unnt er að fyrirtæki og starfsmannaleigur sinni upplýsingaskyldu sinni þannig að Vinnumálastofnun geti sinnt því eftirliti sem stofnuninni hefur verið falið samkvæmt lögum.
Virðulegi forseti. Vinnumarkaðurinn hér á landi er vel skipulagður með öflugum samtökum launafólks og atvinnurekenda sem semja sín á milli í kjarasamningum um laun og önnur starfskjör starfsmanna sem eru þátttakendur á innlendum vinnumarkaði sem og um aðra þætti er varða hagsmuni launafólks og atvinnurekenda. Árið 1980 voru sett lög hér á landi um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda þar sem meðal annars er kveðið á um að laun og önnur starfskjör sem samtök aðila vinnumarkaðarins semja um skuli vera lágmarkskjör á íslenskum vinnumarkaði. Jafnframt kemur fram í framangreindum lögum að samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skuli vera ógildir. Lögin voru sett í því skyni að tryggja að launamenn á innlendum vinnumarkaði njóti ekki lakari kjara en þeirra sem samið er um í kjarasamningum. Þetta er mikilvægt að hafa í huga. Þannig er öllum fyrirtækjum sem starfa hér á landi, erlendum jafnt sem innlendum, óheimilt að bjóða starfsmönnum sínum lakari kjör en samið hefur verið um í kjarasamningum, algerlega óháð því hvort hlutaðeigandi fyrirtæki eru aðilar að viðkomandi kjarasamningum eða ekki.
Í samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2004 er meðal annars áréttað að það sé sameiginleg skylda þeirra og verkefni að verja það fyrirkomulag sem gildir á íslenskum vinnumarkaði, þá sérstaklega að ákvarða kaup og önnur starfskjör með kjarasamningum. Jafnframt er áréttað að öllum fyrirtækjum beri að virða þau lög og kjarasamninga sem hér gilda óháð þjóðerni viðkomandi fyrirtækis eða starfsmanna þess. Þessi yfirlýsing undirstrikar mikilvægi þess fyrirkomulags á vinnumarkaði sem hér gildir. Sama gildir um þær skyldur sem samtök aðila vinnumarkaðarins hafa axlað til að fylgja því eftir að farið sé að leikreglum á vinnumarkaði.
Í ljósi framangreinds er í frumvarpinu kveðið á um svokallaða keðjuábyrgð notendafyrirtækja í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð en gert er ráð fyrir að ábyrgðin nái meðal annars til vangoldinna lágmarkslauna starfsmanna sem starfa hér á landi á vegum fyrirtækis við veitingu þjónustu á grundvelli þjónustusamnings fyrirtækisins og notenda fyrirtækis.
Það er jafnframt gert ráð fyrir að ábyrgðin nái til vangoldinna lágmarkslauna starfsmanna annarra fyrirtækja sem hafa gert þjónustusamninga sem byggjast á fyrrnefndum þjónustusamningi án þess að um sé að ræða beint samningssamband milli umræddra fyrirtækja og notenda fyrirtækisins. Er þetta meðal annars lagt til í samræmi við 12. gr. tilskipunarinnar sem frumvarpinu er ætlað að innleiða en þar er kveðið á um slíka ábyrgð í tilteknum starfsgreinum.
Þannig er frumvarpinu meðal annars ætlað að stuðla að jafnri samkeppnisstöðu fyrirtækja í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð á íslenskum vinnumarkaði með því að koma í veg fyrir að erlend fyrirtæki sem virða ákvæði laga og gildandi kjarasamninga að vettugi eigi samkeppnisforskot á önnur fyrirtæki sem fara að lögum og reglum.
Þrátt fyrir að í frumvarpi þessu sé gert ráð fyrir að fyrst um sinn eigi umrædd ábyrgð notendafyrirtækis einungis við um notendafyrirtæki í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð er gert ráð fyrir því að fylgst verði grannt með aðstæðum á vinnumarkaði þannig að unnt verði að grípa inn í með því að leggja til breytingu á lögunum verði aðstæðurnar með þeim hætti að mikilvægt þyki að kveða á um að notendafyrirtæki með starfsemi innan fleiri atvinnugreina beri umrædda ábyrgð á grundvelli laga um útsenda starfsmenn. Komi til aðstæðna á vinnumarkaði sem kalla á slíka lagabreytingu er gert ráð fyrir að frumvarp til breytinga á fyrrnefndum lögum verði lagt fram á Alþingi að höfðu samráði við samtök aðila vinnumarkaðarins.
Þá er lagt til í frumvarpinu að í lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum verði kveðið á um svokallaða verkkaupaábyrgð í byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð. Í þessu felst að á vinnustöðum þar sem fleiri en einn atvinnurekandi er að störfum samtímis við byggingarstarfsemi eða mannvirkjagerð falli það í hlut verkkaupa eða fulltrúa hans að skipuleggja og samræma aðgerðir sem tryggja að við hönnun, undirbúning og framkvæmd verks verði gætt fyllsta öryggis, góðs aðbúnaðar og hollustuhátta. Lagt er til að framangreint eigi við um vinnu sem stendur yfir í tiltekinn tíma og skal verkkaupi þá jafnframt tilkynna vinnueftirliti ríkisins um vinnustaðinn áður en vinnan sjálf hefst.
Virðulegi forseti. Líkt og ég gat um í upphafi er megintilgangur frumvarpsins að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um framfylgd eldri tilskipunar um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og fleira. Eðli málsins samkvæmt snúa því flest ákvæði frumvarpsins að breytingum á lögum um útsenda starfsmenn. Í því skyni að gæta samræmis gerir frumvarpið þó ráð fyrir breytingum á ýmsum lögum sem gilda á vinnumarkaði, svo sem lögum um starfsmannaleigur, lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Breytingar þessar lúta meðal annars að ákvæðum er varða upplýsingaöflun og samvinnu stjórnvalda sem hafa eftirlit á vinnumarkaði sem og að ákvæðum sem kveða á um heimild til að leggja dagsektir á fyrirtæki sem ekki fara að ákvæðum laga í því skyni að gera eftirlitið skilvirkara en nú er.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að heimilt verði að veita tímabundin atvinnuleyfi vegna einstaklinga sem fengið hafa dvalarleyfi hér á landi fyrir hugsanleg fórnarlömb mansals eða fyrir fórnarlömb mansals. Þykir þetta geta bætt stöðu þessara einstaklinga og aukið líkur á að unnt verði að rannsaka mál þeirra til hlítar.
Til viðbótar gerir frumvarpið ráð fyrir að nýju ákvæði verði bætt við lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem fram komi að með lögunum sé innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um ráðstafanir til að greiða fyrir því að launþegar geti nýtt sér þau réttindi sem þeir hafa í tengslum við frjálsa för launþega.
Ekki er gert ráð fyrir að ákvæðum laganna verði breytt að öðru leyti þar sem efni fyrrnefndrar tilskipunar er nú þegar talið innleitt í íslenskan rétt með ákvæðum gildandi laga. Er því gert ráð fyrir að einungis verði tekið fram í sérstöku ákvæði í lögunum að fyrrnefnd tilskipun hafi verið innleidd hér á landi.
Virðulegi forseti. Ég hef nú rakið helstu breytingarnar sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir á ýmsum lögum sem gilda á innlendum vinnumarkaði. Að mínu mati er afar mikilvægt að frumvarpið verði samþykkt sem allra fyrst hér á þinginu, ekki síst í ljósi þess að aldrei hafa fleiri erlendir ríkisborgarar starfað á vinnumarkaði hérlendis en í byrjun þessa árs en þá voru þeir um 10,3% af þátttakendum á innlendum vinnumarkaði. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru um það bil 20.000 erlendir starfsmenn þátttakendur á vinnumarkaði hérlendis í lok árs 2016. Til samanburðar voru um 18.500 erlendir ríkisborgarar starfandi hér á landi árið 2008 en árið 2007 voru þeir rúmlega 16.000 og árið 2006 ríflega 12.000. Erlendum þátttakendum á vinnumarkaði hérlendis fer því fjölgandi ár frá ári. Um það er engum blöðum að fletta.
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru samtals 54 erlend fyrirtæki skráð hjá stofnuninni árið 2016 sem sent höfðu tæplega 1.000 starfsmenn tímabundið hingað til lands í því skyni að veita hér þjónustu og var fjöldi starfsmanna á vegum starfsmannaleigna, innlendra sem erlendra, rúmlega 1.500 til viðbótar á sama tíma. Þá voru rúmlega 300 starfsmenn erlendra fyrirtækja þátttakendur á innlendum vinnumarkaði í janúar 2017 en til samanburðar var sá fjöldi rúmlega 170 árið áður eða í lok janúar 2016. Þá má geta þess að áætlað er að starfsemi erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn sína hingað til lands í því skyni að veita hér þjónustu sem og erlendra starfsmannaleigna á íslenskum vinnumarkaði muni líklega aukast hér á landi á komandi árum. Þetta er eitthvað sem við ættum að gera ráð fyrir. Í því sambandi má nefna að um 40 erlend fyrirtæki sem voru með starfsemi hér á landi í febrúar 2017 féllu undir gildissvið laga um útsenda starfsmenn en til samanburðar voru þau níu árið áður eða í febrúar 2016. Þá voru 26 starfsmannaleigur starfandi hér á landi í lok febrúar á þessu ári, 2017, bæði innlendar og erlendar, samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar. En árið áður, eða í febrúar 2016, voru þær helmingi færri, eða 13. Að mínu mati verðum við að bregðast við þessari þróun í því skyni að tryggja eins og kostur er að þau erlendu fyrirtæki sem senda starfsmenn hingað til lands til að veita hér þjónustu, þar með talið starfsmannaleigur, fari eftir þeim reglum sem gilda á vinnumarkaði hérlendis. Í því sambandi er ekki síst mikilvægt í mínum huga að þeir starfsmenn sem um ræðir njóti þeirra launa og annarra starfskjara sem þeim ber samkvæmt lögum og kjarasamningum sem hér gilda.
Ég vil geta þess að verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að sá kostnaður sem fellur til hjá eftirlitsstofnunum, ekki síst Vinnumálastofnun, vegna aukinna umsvifa við eftirlit með erlendum þjónustuveitendum rúmist innan fjárheimilda viðkomandi stofnana og komi því ekki til með að hafa áhrif á ríkissjóð.
Að lokum, virðulegi forseti, legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.