146. löggjafarþing — 64. fundur,  9. maí 2017.

réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja o.fl.

457. mál
[20:51]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það geti enginn verið í sjálfu sér efnislega á móti því sem hv. þm. Katrín Jakobsdóttir sagði í pontu áðan. Eftir stendur að við erum að ræða þetta innleiðingarmál. Það hefur því miður verið allt of mikill halli á mikilvægum innleiðingarmálum í gegnum EES-samninginn. En það er bara einfaldlega svo að lögum samkvæmt eiga menn að fara eftir kjarasamningum. Menn skulu bara vesgú gera það, fara eftir kjarasamningum, uppfylla það sem þar kemur fram. Þetta er m.a. gert til að vernda útsendu starfsmennina. Þeir þurfa á aukinni vernd að halda. Við áttum okkur á því. Málið í heild sinni er því mjög jákvætt. Ég vil líka benda hv. þingmanni á að við erum með aðrar eftirlitsstofnanir, við erum með skattinn, Vinnueftirlitið og fleiri, sem hljóta að reyna að standa vörð um að farið sé eftir íslenskum kjarasamningum, íslenskum lögum, og þar af leiðandi að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir félagsleg undirboð, sem eru algerlega óásættanleg.