146. löggjafarþing — 64. fundur,  9. maí 2017.

réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja o.fl.

457. mál
[21:04]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Nei, um þetta eiga bara að gilda almennar reglur. Við erum ekki að fara einhverja fjallabaksleið með því að rýra persónuvernd útsendra starfsmanna. Ég vil vekja athygli á að þetta frumvarp hefur verið unnið í víðtæku samráði við aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélög og marga aðra sem hafa komið að þessu. Ég held að það skipti máli að hafa í huga. En það sem gerist núna er að við fáum þetta til umfjöllunar í nefnd þingsins, velferðarnefnd. Þá fara menn bara einfaldlega yfir m.a. þær ábendingar sem hv. þingmaður hefur komið réttilega á framfæri hér í andsvari. Ég undirstrika núna, því að þetta er síðasta andsvarið í bili alla vega, að mikilvægt er að ekki bara þingmenn taki þátt í umræðu um svona mikilvæg mál og komi sjónarmiðum sínum á framfæri, heldur líka að málið verði unnið vel áfram í samráði við aðra í þingnefndum, en um leið undirstrika ég að þetta er réttarbót fyrir ákveðinn hóp útsendra starfsmanna sem ég vona að þingið muni ýta undir og veita framgang. (Gripið fram í: Höfum við tíma?)