réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja o.fl.
Virðulegi forseti. Mjög ánægjulegt er að eiga orðastað við hv. þingmann, man alltaf eftir fyrstu kynnum okkar þar sem ég leiðrétti leturgerð á tölvu hv. þingmanns hérna fyrir nokkrum árum og gat þá veitt af viskubrunni mínum um þau mál. Ég vonast til að fá svipað endurgoldið í þessu því að ég hef mjög mikinn áhuga á hluta ræðu hennar um þennan þrældóm, eða í rauninni þennan efnahagslega þrældóm sem við í rauninni búum dálítið við í dag. Þetta á ekki bara við um erlendar starfsmannaleigur sem koma hingað og undirbjóða laun, þetta á líka mjög mikið við á innlendum vinnumarkaði þar sem við erum með ákveðna láglaunastefnu á mörgum sviðum. Það er rosalega stór hluti Íslendinga sem er fastur í þeirri hringrás að verða að vinna til að geta lifað af og verða sér úti um vinnu víðar en á einum stað og því um líkt.
Vissulega búum við við mjög breyttan heim. Þessar aðstæður verða í rauninni til vegna hans. Meiri sjálfvirkni, stærri heimur, það er meira flæði vinnuafls og hugmynda. Það er ákveðin togstreita einmitt á milli þessara starfa sem er hægt að sjálfvirknivæða þar sem eru mögulega lág laun eða aðrar lausnir til.
Ég hefði áhuga á að útvíkka aðeins þessa umræðu með tilliti til þessa lagafrumvarps og þeirra aðstæðna sem það á að laga. Er það í alvörunni að laga þetta vandamál? Er þetta ekki einmitt vandamál líka sem við þurfum að taka á á (Forseti hringir.) innlendum vinnumarkaði?