réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja o.fl.
Frú forseti. Nú þekki ég íslenskan vinnumarkað ekki nægilega vel til að vita hvort það sem hv. þingmaður nefnir í ræðunni viðgengst. Líklega getur samt verið að svo sé. Eins og ég kom inn á áðan þurfum við fyrst og fremst að tryggja réttindi allra launamanna, ekki bara erlendra og ekki bara fleiri erlendra heldur íslenskra líka. Við eigum, eins og ég kom inn á áðan, ofboðslega mikið undir því að jöfnuður sé í samfélaginu og helst meiri en er í dag. Við megum ekki við því að einhvers konar samkeppnisástand skapist sem byggist á því að fólk neyðist til að taka að sér vinnu eða veita viðvik fyrir skammarleg laun og búi við þær aðstæður að geta ekki hafnað því.