frumvarp um tóbaksvarnir og rafrettur.
Forseti. Peter Hajek er prófessor í klínískri sálfræði og forstöðumaður heilbrigðis- og lífsstílsrannsókna við Wolfson-stofnunina í Bretlandi. Rannsóknir hans beinast helst að því að skilja hegðun í heilbrigðismálum og meta bæði atferli og meðferðarúrræði fyrir tóbaksneytendur sem eiga við líkamsþyngdarvandamál að stríða. Hann hefur aðstoðað við stofnun sérstakrar þjónustu í Bretlandi sem býður tóbaksneytendum aðstoð við að hætta notkun tóbaks, m.a. með þjálfun starfsfólks og notkun NICE-vinnureglna. John Britton er prófessor í farsóttafræði, forstöðumaður stofnunar um tóbaks- og áfengisrannsóknir hjá stofnun lyflækninga og heilbrigðisfræða. Clive Bates er forstöðumaður hjá Counterfactual Consulting Ltd. Linda Bauld er prófessor í heilsustefnu, forstjóri stofnunar um samfélagsmiðlun og deildarforstjóri rannsókna við Sterling-háskóla í Bretlandi. Hún er einnig varaforseti stofnunar um tóbaks- og áfengisrannsóknir í Bretlandi. Síðan í ágúst 2014 hefur hún einnig verið forsvarsmaður krabbameinsrannsóknar í Bretlandi sem felur meðal annars í sér aðild að CRUK, sem er stærsta sjálfstæða góðgerðarfélag vegna krabbameins í heimi, þar sem hún hefur leitt krabbameinsforvarnir þeirra. Linda er atferlisfræðingur með doktorsgráðu í félagsfræðilegri stefnumótun. Rannsóknir hennar beinast helst að tveimur þáttum: Mati á flóknum inngripum í heilbrigðismálum og notkun gagna sem grundvöll til ákvarðanatöku í heilbrigðismálum. Hún hefur unnið rannsóknir í áfengis- og fíkniefnanotkun, ójöfnuð á sviði heilbrigðis og sérstaklega forvörnum gegn neyslu tóbaks.
Þessir fjórir aðilar voru í pallborði í gær á ráðstefnu um byltingu í tóbaksvörnum sem tengjast rafrettum. Enginn kom frá heilbrigðisráðuneytinu og ekki þótti ráðherranum tíma sínum vel varið í að koma á þessa ráðstefnu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann ætli að leggja sig fram við að ná sér í þær upplýsingar sem komu fram á þessari ráðstefnu því þær eru (Forseti hringir.) mjög nauðsynlegar í tengslum við vinnslu á því frumvarpi sem hér liggur fyrir Alþingi um rafrettur.