Landhelgisgæslan og endurnýjun þyrluflotans.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni, málshefjanda, fyrir að brydda upp á þessu ágæta máli og gefa mér þannig tækifæri til að reifa stöðuna er varða þyrlukaup. Eins og kom fram í máli málshefjanda skilaði sérstakur stýrihópur um endurnýjun þyrluflotans tillögum til ráðherra í janúar 2016. Í framhaldinu ákvað þáverandi ríkisstjórn að ráðast í það verkefni að endurnýja þyrluflotann. Í þeirri ákvörðun fólst það að útboð og undirritun kaupsamnings færi fram á árinu 2019. Þau áform voru kynnt í fjármálaáætluninni fyrir árin 2017–2021 og þau eru ítrekuð í þeirri fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir þinginu til umfjöllunar.
Ríkisstjórnin undirbýr núna endurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar með það að markmiði að Landhelgisgæslan fái þrjár nýjar þyrlur afhentar á árunum 2021–2023. Með endurnýjun þyrluflotans eykst að sjálfsögðu rekstraröryggi og hagkvæmni, ég tek þannig undir þá skoðun sem sett er fram í skýrslu stýrihópsins og málshefjandi reifaði hérna. Nýju þyrlurnar verða útbúnar fullkomnum tækjabúnaði sem gerir þyrlusveitinni enn betur kleift að koma sjófarendum til bjargar og sinna meira álagi í verkefnum á landi, svo sem vegna aukins ferðamannastraums. Þetta er því mjög stór áfangi í því að styrkja leit og björgun bæði á hafi og á landi og efla Landhelgisgæsluna í öðrum verkefnum sem hún sinnir.
Á grundvelli niðurstöðu stýrihópsins sem skilaði skýrslunni 2016 verður fyrst samin nákvæm kröfulýsing fyrir útboð um getu þyrlunnar og nauðsynlegan tækjabúnað. Fjármálaáætlunin gerði ráð fyrir að þessi verkþáttur hæfist á árinu 2018, en Landhelgisgæslan hefur hins vegar fengið heimild til að flýta þessu verki og hefja nú þegar vinnu við gerð tæknilýsingar og annarra gagna sem nauðsynlegt er til að hægt verði að hefja útboðsferlið og framkvæma forathugun á markaðnum. Þannig fæst betri þekking á hugsanlegum bjóðendum, á markaðsverði og umtalsverður tími sparast þegar að útboði kemur. Mögulega spilast hér inn í að við getum nýtt okkur þau tækifæri sem felast í hagstæðu gengi í þessum efnum.
Þetta verkefni er unnið núna af verkefnishóp Landhelgisgæslunnar undir forystu verkefnisstjóra sem verður ráðinn tímabundið til starfans. Haft verður samráð við Ríkiskaup um tæknilýsingu og leitað upplýsinga hjá nágrannaþjóðum sem nýlega hafa keypt þyrlur, t.d. Finnland og Danmörk. Áætlanir gera ráð fyrir að þessi undirbúningsvinna hefjist á næstu vikum og verði kostnaður sem fellur til á árinu 2017, á yfirstandandi ári, greiddur úr Landhelgissjóði og á árinu 2018 komi til sérstök fjárveiting til að standa straum af kostnaði við undirbúning útboðs.
Samkvæmt fjármálaáætlun 2018–2022 verða kaupin boðin út á árinu 2019 og þyrlurnar afhentar Landhelgisgæslunni á árunum 2021–2023 eins og ég nefndi hér fyrr. Gert er ráð fyrir 14 milljörðum til þessara kaupa, en það er auðvitað kannski ekki eðlilegt að fastbinda það. Menn þurfa að átta sig á því að við erum auðvitað að fara í útboð til þess að fá hagstæðasta verð og engin leið að segja til um hvað kemur út úr því. Ástæðulaust er kannski að festa fjárhæðina þannig að menn nái nú ekki hagstæðasta tilboði.
Spurt er hvort mögulegt sé að flýta endurnýjun þyrluflotans. Ég hef nú þegar nefnt þessa undirbúningsvinnu sem er nauðsynleg. Hún er að hefjast ári fyrr. Ef áætlanir ganga eftir með að ljúka fyrsta verkþætti sem lýtur að gerð tæknilýsinga fyrir lok þessa árs þá væri hægt að flýta þessu verkefni í heild um eitt ár að því tilskildu að aðstæður í ríkisfjármálum breyttust frá því sem gert er ráð fyrir í ríkisfjármálaáætluninni. Ekki hefur verið ákveðið að festa fyrr kaup á þyrlunum. Fyrsta áfanga var hraðað til að rýmri tími gæfist til að undirbúa útboðið og kaupin.
Líka var spurt, held ég alveg örugglega, að minnsta kosti í þeirri skriflegu fyrirspurn sem lá hérna til kynningar fyrir þinginu, hvort unnið hafi verið að hugmynd sem Landhelgisgæslan setti upp um aðra starfsstöð á austurhluta landsins með sérstaka áherslu á þyrlurekstur Gæslunnar. Því er til að svara að ekki hefur farið fram formleg úttekt á þörf fyrir aðra starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Norður- og Austurlandi sem yrði þó nauðsynlegt að gera ef sú ákvörðun yrði tekin. Hins vegar hefur reynsla Landhelgisgæslunnar á undanförnum árum verið rýnd með hliðsjón af tölfræði og öðru. Það bendir til þess að starfsstöð á Norður- og Austurlandi myndi bæta verulega þjónustu Landhelgisgæslunnar, en eins og vænta mætti myndi það auðvitað leiða til verulega aukins rekstrarkostnaðar.