146. löggjafarþing — 65. fundur,  15. maí 2017.

takmarkanir á tjáningarfrelsi.

297. mál
[17:14]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Mig langar að nýta þetta tækifæri til að eiga orðastað við hæstv. dómsmálaráðherra um ákvæði almennra hegningarlaga um takmarkanir á tjáningarfrelsi í tilefni af ítrekuðum dómum Mannréttindadómstóls Evrópu um tjáningarfrelsi blaðamanna.

Nú hefur það gerst að Hæstiréttur hefur verið dæmdur brotlegur einum sex sinnum í málum sem lúta að tjáningarfrelsi blaðamanna. Síðasta málið er frá því í maí á þessu ári en ekki er langt síðan fimmta málið kom upp. Nýjasta málið lýtur að dómi Hæstaréttar gegn blaðamönnunum Reyni Traustasyni, Inga Frey Vilhjálmssyni og Jóni Trausta Reynissyni, en þarsíðasta mál varðaði Steingrím Sævar Ólafsson, þáverandi ritstjóra Pressunnar. Einir þrír dómar hafa síðan fallið í málum tengdum Erlu Hlynsdóttur. Það vekur upp spurningar um hvort endurskoða þurfi lagaumhverfið.

Fram kom í viðtali við formann Dómarafélagsins í Ríkisútvarpinu á þessu ári, og þá vitna ég til Skúla Magnússonar, formanns Dómarafélags Íslands, að ákvæði almennra hegningarlaga um takmarkanir á tjáningarfrelsinu væru úreltar og óhjákvæmilegt að þær yrðu endurskoðaðar.

Ég hef sérlegan áhuga á þessu máli af því að þegar prentlögin voru felld úr gildi á sínum tíma og ný fjölmiðlalög voru sett var sérstaklega hugað að þeim málum sem vörðuðu tjáningarfrelsi blaðamanna. En það liggur fyrir og kemur fram í ágætri umfjöllun hjá fjölmiðlanefnd á heimasíðu þeirrar ágætu nefndar að þær breytingar sem gerðar voru á fjölmiðlalögunum og ætlað var að tryggja með betri hætti tjáningarfrelsi blaðamanna duga ekki til á meðan ákvæði almennra hegningarlaga eru óbreytt.

Hins vegar má spyrja hvort hvort tveggja þurfi að gera. Ég hef áhuga á að heyra sjónarmið hæstv. ráðherra gagnvart því, þ.e. að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga. Það kom líka fram hjá formanni Dómarafélags Íslands að dómstólar þyrftu að endurskoða sína framkvæmd.

En spurning mín til hæstv. ráðherra er: Telur hún að þetta mál liggi fyrst og fremst í framkvæmd laganna eða tekur hún undir með formanni Dómarafélags Íslands um að það þurfi að endurskoða þessi ákvæði?

Það er umhugsunarefni fyrir samfélag okkar að nú sé sex sinnum búið að úrskurða að Hæstiréttur hafi í raun gerst brotlegur eða ekki staðið sig í stykkinu hvað varðar þessi málefni þegar Mannréttindadómstóllinn kemst að annarri niðurstöðu en Hæstiréttur í sex skipti. Ítrekað á undanförnum árum.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hyggst hún endurskoða (Forseti hringir.) ákvæði almennra hegningarlaga? Megum við megum eiga von á slíkum tillögum á næstunni eða telur hún að einhver önnur sjónarmið þurfi að skoða í tilefni af þessum vandræðalegu málum, leyfi ég mér að segja?