146. löggjafarþing — 65. fundur,  15. maí 2017.

þjónusta vegna kvensjúkdóma.

302. mál
[18:07]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Óttarr Proppé) (Bf):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Eygló Harðardóttir hefur beint til mín munnlegri fyrirspurn um þjónustu vegna kvensjúkdóma sem stúlkur undir 18 ára aldri glíma við. Ég vil byrja á að þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þjónustu við börn, en það viðfangsefni er alltaf sérstaklega mikilvægt umfjöllunarefni.

Eins og hv. þingmaður rakti í ræðu sinni er spurt í fyrsta lagi hvernig þjónustu Landspítalans við stúlkur undir 18 ára aldri sem þangað leita vegna kvensjúkdóma sé háttað. Í öðru lagi er spurt hvort ráðherra telji þá þjónustu fullnægjandi.

Landspítalinn hefur útskýrt fyrir mér hvernig verklagi er háttað varðandi þjónustu við stúlkur undir 18 ára aldri sem þangað leita vegna kvensjúkdóma. Í stuttu máli er þjónusta Landspítalans við þennan tiltekna hóp með eftirfarandi hætti:

Ef vitað er fyrir fram, þ.e. áður en stúlka undir 18 ára aldri kemur á Landspítalann, að vandamálið þarfnast aðkomu kvensjúkdómalæknis, svo sem í gegnum upplýsingar frá bráðamóttöku, heilsugæslulækni eða öðrum sérfræðingum utan spítalans, kemur stúlkan beint á bráðamóttöku kvennadeildar eða göngudeildar kvennadeildar, allt eftir bráðleika vandamálsins.

Stúlkur sem eru með kviðverki af óljósum uppruna koma á bráðamóttöku barna og bráðamóttaka barna leitar álits kvennadeildar eftir því sem við á. Allar þungaðar stúlkur undir 18 ára aldri koma beint á kvennadeild.

Eins og ég greindi frá í svari mínu við fyrirspurn hv. þingmanns um þjónustu heilbrigðiskerfisins við konur með legslímuflakk hefur Landspítalinn undanfarin ár unnið markvisst að því að skipuleggja betur og auka þjónustu við þann sjúklingahóp, m.a. með fjölgun faghópa sem sinna konum sem glíma við þann heilsuvanda, þ.e. legslímuflakk.

Þá greindi ég einnig í svari mínu við þeirri fyrirspurn frá mikilvægi aukinnar fræðslu um legslímuflakk til unglingsstúlkna, foreldra og heilbrigðisstarfsfólks. Ég vísa aftur til tillagna eða ábendinga sem komu fram í skýrslu sem var skilað af starfshópi sem var falið að vinna að heildarendurskoðun á lögum nr. 25/1975, um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, og mikilvægi þess að bætt yrði í þegar kæmi að kynfræðslu og upplýsingagjöf til ungmenna og í skólum.

Síðari hluti fyrirspurnar hv. þingmanns er um hvort heilbrigðisráðherra telji þjónustu Landspítalans við stúlkur undir 18 ára aldri sem þangað leita vegna kvensjúkdóma vera fullnægjandi. Varðandi þá þjónustu eins og ýmsa aðra þjónustu innan heilbrigðiskerfisins verður að segja að jafnvel þótt þjónusta sé góð má hún alltaf verða betri og í einhverjum tilvikum má vissulega bæta í.

Eins og kom fram í svari mínu við fyrirspurn fyrr um þjónustu við konur með legslímuflakk hefur verið bætt í þjónustu á kvennadeild og undirbúin aukin teymisvinna þegar þar að kemur. Ég tel að við eigum að ýta undir þá þróun og passa upp á að hún nái alveg örugglega til barna undir 18 ára aldri.

Ég tel hins vegar það verklag sem Landspítalinn hefur innleitt vera gott og álit embættis landlæknis er samhljóða því áliti mínu. Ég tel að við séum á réttri leið en ég get vel tekið undir það með hv. fyrirspyrjanda að við eigum að gera betur. Það er mikilvægt þegar horfum á heilbrigðisþjónustu og þjónustu, hvort sem er á Landspítalanum eða annars staðar í heilbrigðiskerfinu, að við tryggjum jafnt aðgengi kynjanna og það sé öruggt að sjúkdómum kvenna sé gert hátt undir höfði og upplýsingar og fræðsla um þá sé aukin þvert yfir í heilbrigðiskerfinu.

Ég þakka fyrir góða fyrirspurn og hlakka til umræðunnar.