kaup á nýjum krabbameinslyfjum.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Svandís Svavarsdóttir hefur beint til mín fyrirspurn um kaup á nýjum krabbameinslyfjum og vitnar til svars okkar í Bjartri framtíð í aðdraganda kosninga um aðgengi að lyfjum. Ég get staðið við þann vilja sem kom fram í því svari, að sjúklingar eigi að hafa aðgengi að bestu mögulegu lyfjum á hverjum tíma. Við vitum að öll heilbrigðisþjónusta og öll lyf eru auðvitað að einhverju leyti háð fjármögnun og fjárlögum frá Alþingi en grunnstefnan á Íslandi er sú að við veitum aðgengi að lyfjum í takti við það sem gerist hjá þjóðunum í kringum okkur. Síðustu árin, eftir hrunið, hefur ekki tekist að halda þeim dampi en til allrar hamingju hefur nú tekist að vinna upp þann hala.
Hv. þingmaður spyr: Hafa verið efnd fyrirheit ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar á þessu ári um að fé yrði veitt til kaupa á nýjum krabbameinslyfjum?
Eitt fyrsta verk mitt sem heilbrigðisráðherra var að funda þann 19. janúar sl. með formanni lyfjagreiðslunefndar, forstjóra Landspítala og fulltrúa Sjúkratrygginga Íslands þar sem þessir aðilar bentu á að lyfjamálum væri þröngur stakkur skorinn í fjárlögum ársins. Þau gæfu ekki svigrúm til innleiðingar nýrra lyfja, hvorki S-merktra né almennra lyfja. Í framhaldi af þeim fundi tók ég málið upp í ríkisstjórn sem á fundi sínum þann 20. janúar samþykkti að fela fjármála- og efnahagsráðherra, í samráði við heilbrigðisráðherra, að tryggja aukið fé til málaflokksins og er verkefni þeirra m.a. að leggja mat á fjárþörfina og umfang vandans. Frá því að þessi samþykkt ríkisstjórnarinnar var gerð hefur verið unnið að þessu verkefni og til að gera langa sögu stutta mætti formaður lyfjagreiðslunefndar á fund minn þann 19. apríl sl. til að ræða áætlanir og fjárheimildir nefndarinnar vegna innleiðingar nýrra lyfja í tengslum við samþykkt ríkisstjórnarinnar. Sú áætlun sem formaður lyfjagreiðslunefndar kynnti var innan ramma þeirra fjárheimilda sem ég ræddi í ríkisstjórninni í janúar að þyrfti að bæta við og samþykkt ríkisstjórnarinnar gengi út á að reynt yrði að því að mæta. Í þeirri áætlun eru nokkur ný krabbameinslyf sem beðið hefur verið eftir að yrðu innleidd en almennt eru ekki fleiri lyf við öðrum sjúkdómum sem hafa verið á forgangslista Landspítalans.
Ráðuneytinu leist vel á þessa áætlun formanns lyfjagreiðslunefndar og vinnubrögð nefndarinnar sem ráðuneytið getur stutt. Ráðuneytið lítur svo á að lyfjagreiðslunefnd sé heimilt að vinna áfram í samstarfi við Landspítalann að því hvernig best skuli staðið að forgangsröðun við innleiðingu nýrra lyfja. Eitt af því sem hefur tafið málið er að samningar Landspítala um afsláttarverð hafa tekið tíma en mikilvægt er að ná fram verðlækkun á þessum lyfjum svo ásættanlegt sé að lyfjagreiðslunefnd samþykki greiðsluþátttöku eða leyfisskyldu.
Að öðru leyti er nefndinni ekkert að vanbúnaði og á hún að geta tekið til afgreiðslu umsóknir um leyfisskyldu í þeim lyfjum sem eru með greiðsluþátttöku á Norðurlöndunum með hliðsjón af forgangslista Landspítalans og þeim lyfjum sem spítalinn hefur náð fram verðlækkun á í samningum við markaðsleyfishafa eða með útboði.
Varðandi annan hluta fyrirspurnar hv. þingmanns, um hve miklu fé verði varið til kaupa á nýjum krabbameinslyfjum á þessu ári, er því til að svara að endanleg upphæð liggur ekki fyrir þar sem ekki hefur verið gengið frá samningum um afsláttarverð þeirra lyfja sem eru í forgangi, auk þess sem það ríkir skiljanlega nokkur óvissa um fjölda sjúklinga sem munu þurfa á þessum lyfjum að halda. Ég hef sagt opinberlega að ekki sé óvarlegt að áætla að það geti verið vel á annan milljarð þegar upp er staðið sem þurfi að bæta í málaflokkinn en það er kannski erfitt að segja það nákvæmar.
Í þriðja lagi spyr hv. þingmaður hve margir sjúklingar muni eiga þess kost að fá ný krabbameinslyf og hvenær þau verði tiltæk. Það er í sjálfu sér sama svar og við 2. lið, þ.e. nokkur óvissa er um fjölda sjúklinga sem muni þurfa á þessum lyfjum að halda, auk þess að þar sem ekki hefur verið gengið frá samningum um afsláttarverð í innkaupum þessara lyfja vitum við ekki endanlega kostnaðinn á þeim.
Ég þakka mikilvæga fyrirspurn til að skýra aftur flókinn málaflokk sem skiptir mjög miklu máli, sérstaklega fyrir þá sjúklinga sem bíða, og hlakka til góðrar umræðu.