kaup á nýjum krabbameinslyfjum.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra. Það er ágætt að heyra að það hefur aðeins verið spýtt í í þessum málaflokki þó að alltaf megi gera betur. Mig langaði rétt að blanda mér í þessa umræðu af því að fyrir mér snýst þetta um ákveðin grundvallaratriði og sýn á heilbrigðismál almennt. Mér finnst við vera í einhverju plástrafyrirkomulagi, það þarf ekki annað en að fletta fjármálaáætlun sem við erum að fjalla um, í staðinn fyrir að ræða grunnþörfina, fjármunina sem þarf, og hvort við erum tilbúin í þá tekjuöflun sem nauðsynleg er til að standa að þessum málum eins og við viljum. Heilbrigðisþjónusta er háð fjármögnun og fjárlögum frá Alþingi, sagði hæstv. ráðherra áðan. Það er vissulega satt og rétt, en fjármögnun Alþingis er háð því að það sé vilji til að afla meiri tekna. Mér hefur þótt sorglegt að við skulum til að mynda ætla að taka í beinan arf skattstefnu hægri stjórnarinnar (Forseti hringir.) sem sat hér síðast í stað þess að beita félagshyggju við skattheimtu til að geta farið almennilega í að setja útgjöld til heilbrigðisþjónustu í lag.