146. löggjafarþing — 65. fundur,  15. maí 2017.

fóstur og fósturbörn.

469. mál
[19:25]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Þorsteinn Víglundsson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Ég verð bara að taka undir með hv. þingmanni. Við vitum of lítið um þennan hóp. Við söfnum of litlum upplýsingum saman um hvernig börnum vegnar í fóstri, hvernig þeim vegnar eftir að fóstri lýkur, hvernig skólagöngu er háttað o.s.frv. Ég held að við þurfum raunar að skoða betur hvernig við höldum utan um nákvæmlega þessa þætti og hlutverk barnaverndaryfirvalda og Barnaverndarstofu þegar kemur að ráðgjöf og aðstoð við sveitarfélögin í fósturúrræðum sem þessum. Við erum með eðli máls samkvæmt mjög stífan ramma þegar kemur að ákvörðun um forsjársviptingu, sem er auðvitað rétt og eðlilegt, enda um grafalvarlegan hlut að ræða, en umgjörð okkar virðist vera talsvert veikari og eftirfylgnin þegar kemur síðan að næstu skrefum sem varðar ákvörðun um fóstur, eftirlit með og mat á árangri hjá fósturfjölskyldum og hvernig börnunum vegnar í framtíðinni. Það hlýtur að vera lykillinn í þessu öllu saman að við fylgjumst mjög vel með og metum framgang barnanna og hvaða áhrif sú ákvörðun um breytingu á þeirra högum hefur á umhverfi þeirra.

Fyrir þinginu liggur tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar, sem ég reikna með að hv. þingmaður og forveri minn í starfi kannist ágætlega við. Þar er einmitt verið að taka á mörgum þessara atriða, t.d. með hvaða hætti megi fjölga fósturforeldrum, því það er ekkert launungarmál að þörf fyrir þessi úrræði hefur aukist mjög, en á móti hefur hins vegar dregið úr einhvers konar stofnana- eða heimilisvistun barna. Það er því mikilvægt að fjölga hæfum einstaklingum sem hafa áhuga á því að gerast fósturforeldrar. Það er eitt af verkefnunum í framkvæmdaáætlun að veita sérstakt fjármagn til þess, en ekki síður líka að veita þeim sem þegar eru starfandi innan kerfisins sem fósturforeldrar möguleika á því að styrkja og efla sína fræðslu og þekkingu. Á næstu 12 mánuðum er gert ráð fyrir að hafinn verði undirbúningur að framhaldsnámskeiði fyrir fósturforeldra sem þá lokið hafa grunnnámskeiði. Á sama tímabili er einnig verið að undirbúa námskeið fyrir fósturforeldra um sértæka erfiðleika barna til að tryggja viðeigandi stuðning við börn með mismunandi þarfir.

Þá verða einnig haldin sérstök námskeið fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að því að gerast vistforeldrar fylgdarlausra barna sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. Þá mun á næstu 12 mánuðum fara fram fýsileikamat á því hvort innleiða eigi svokallað meðferðarfóstur í barnavernd fyrir börn á Íslandi.

Á sama tíma verður einnig kannað hvort innleiða eigi aðrar gagnreyndar aðferðir til þess að styðja betur við börn á fósturheimilum, fósturforeldra og eftir atvikum kynforeldra barns. Þannig verður jafnframt unnt að bæta aðlögun fósturbarna að heimilum kynforeldra í lok tímabundins fósturs.

Einnig spyr hv. þingmaður hvernig ráðherra hyggist bæta eftirfylgni og eftirlit með fósturbörnum. Það er rétt að benda á að fósturráðstafanir fara fram í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Barnaverndarstofa fer með umsjón fósturmála og sér um námskeiðshald fyrir fósturforeldra og annast leyfisveitingar, en það er síðan hlutverk barnaverndarnefndar sem ráðstafar barni í fóstur að fylgjast með aðbúnaði og líðan barnsins og því að fósturráðstöfunin nái tilgangi sínum. Það er sömuleiðis á hendi barnaverndarnefndar og félagsþjónustu að veita barni og foreldrum stuðning og þjónustu eftir lok fósturráðstöfunar.

Það er hins vegar brýnt að efla og bæta eftirlitið. Að því marki hefur þegar verið gerð grein fyrir fyrirhuguðum breytingum í ráðuneytinu varðandi sérstaka eftirlitsstofnun innan ráðuneytisins til þess að skerpa á eftirlitsþætti ráðuneytisins sjálfs, en einnig lýsi ég mig reiðubúinn til nánara samstarfs með sveitarfélögunum um hvernig við getum eflt þetta úrræði og ekki hvað síst eftirlit með því og samræmt gæði þess og árangur um land allt.

Á haustmánuðum mun ráðuneytið síðan hefja vinnu (Forseti hringir.) við gerð nýrrar framkvæmdaáætlunar á sviði barnaverndar. Á þeim (Forseti hringir.) vettvangi verða teknar til skoðunar hugmyndir (Forseti hringir.) að frekari aðgerðum til þess að bæta gæði fósturráðstöfunar (Forseti hringir.) og tryggja stuðning og þjónustu við fósturbörn á meðan á fóstri varir.