fóstur og fósturbörn.
Virðulegi forseti. Ég vona svo sannarlega að forseti sé að fylgjast með, þetta mál sem snýr að framkvæmdaáætlun um barnavernd er einmitt í vinnslu í velferðarnefnd þessa dagana. Þetta er að mínu mati einkar mikilvægur þáttur þeirrar framkvæmdaáætlunar, þær aðgerðir sem er verið að huga að, að bæta og styrkja fósturforeldra í verkefnum sínum til þess að börnunum líði sem allra best og við getum stutt sem best við þau.
Gagnrýndar rannsóknir hafa sýnt okkur betur og betur hversu miklu máli skiptir að börn alist upp við góðar fjölskylduaðstæður og áætlun endurspeglar það svo sannarlega. Að sama skapi er mikilvægt að styðja fósturforeldra í oft mjög erfiðum verkefnum með börn sem hafa upplifað margt slæmt og orðið fyrir miklum áföllum. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við áttum okkur á því hvernig fósturbörnunum gengur í framhaldinu, eftir að hafa verið í fóstri.
Ég myndi líka telja það áhyggjuefni, og það eru aðrar tölur sem er mikilvægt að halda utan um, ef mikil velta er á fósturforeldrum, ef búið er að þjálfa, fara í gegnum námskeið, ef fjölskyldur koma inn sem hafa mikinn áhuga á verkefninu en hætta af einhverri ástæðu. Það hlýtur að segja okkur að við styðjum ekki nægilega vel við þessar fjölskyldur. Að sama skapi er mjög mikilvægt að styðja við upprunafjölskylduna og tryggja eins og hægt er að ekki þurfi að grípa til þess að setja barn í varanlegt, tímabundið eða styrkt fóstur.
Ég er mjög ánægð að heyra þessa áherslu frá ráðherranum og fagna því að ætlunin sé að (Forseti hringir.) bæta úr eftirlitinu. Það er svo sannarlega ástæða (Forseti hringir.) til þess að efla það, (Forseti hringir.) bæði þegar kemur að félagsþjónustunni, (Forseti hringir.) sem var nefnd hér, en líka að starfinu sjálfu.