störf þingsins.
Frú forseti. Að vera frjáls ferða sinna er meðal mikilvægustu réttinda sem við höfum. Þessi réttur er m.a. tryggður í stjórnarskrá Íslands, mannréttindasáttmála Evrópu og alþjóðasamningi um stjórnmálaleg og borgaraleg réttindi. Mig langar að gera vernd þessa mikilvæga réttar á Íslandi að umtalsefni mínu í störfum þingsins í dag. Tilefnið er umfjöllun Kastljóss um dóm Hæstaréttar þess efnis að ríkið hafi brotið gegn því ákvæði stjórnarskrárinnar sem leggur bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Ríkið gerði það þegar það lokaði karlmann á sextugsaldri í einangrun í ellefu daga á lögreglustöð.
Þetta ku vera í fyrsta skipti sem ríkið er dæmt fyrir brot gegn þessu ákvæði stjórnarskrárinnar. Þrátt fyrir það eru brot gegn þessu ákvæði eflaust miklu algengari, enda einangrunarvist margfalt tíðari hér og varir lengur en í nágrannalöndum okkar. Þessi háa tíðni ber þess merki að réttarríkið á Íslandi ber ekki nægjanlega virðingu fyrir frelsi þeirra borgara sem grunaðir eru um refsivert athæfi. En það eru fleiri hópar sem njóta ekki nægilegrar verndar réttarríkisins þegar kemur að rétti þeirra til frelsis. Má þar sérstaklega nefna fólk með geðsjúkdóma, sem getur af þeirri einu sök verið svipt frelsi sínu án fullnægjandi lagastoðar, réttarverndar eða málsmeðferðarréttinda, eins og mér hefur verið tíðrætt um á þessu þingi.
Það er því þyngra en tárum taki að því sé laumað inn í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar sem einhvers konar neðanmálsgrein að ekki standi til að fullgilda viðbótarbókun samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við pyndingum og annarri vanvirðandi og ómannúðlegri meðferð eða refsingu, OPCAT öðru nafni, á því tímabili sem áætlunin nær yfir, eða allt til ársins 2022. Við verðum að tryggja sjálfstætt eftirlit með meðferð þeirra sem sæta hvers konar frelsissviptingu af hálfu hins opinbera ekki seinna en í dag ef okkur er einhver alvara með að standa vörð um réttindi allra okkar hér til frelsis og þá einna helst frelsis frá pyndingum. Annað er ólíðandi í réttarríki.