146. löggjafarþing — 66. fundur,  16. maí 2017.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Einar Brynjólfsson (P):

Frú forseti. Ég vildi að ég væri jafn skáldmæltur og félagi minn, hv. þm. Birgitta Jónsdóttir. Ég ætla að gera að umtalsefni enn og aftur samruna Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans. Þetta mál brennur á almenningi, á íslenskri þjóð. Ég skynja það hvar sem ég kem og ekki bara í því umhverfi sem ég er sprottinn úr, framahaldsskólaumhverfinu, heldur mjög víða, að fólk hefur af þessu þungar áhyggjur. Ráðherra menntamála segist vera með þessu, þ.e. með hugsanlegum samruna, að bregðast við fækkun nemenda. Ég bendi á að nemendum fer að fjölga aftur eftir tvö til þrjú ár í íslenskum framhaldsskólum. Ég bendi á að ekkert samráð hefur verið haft við starfsfólk, nemendur eða foreldra ólögráða nemenda. Hér á sér engin stefnumótun stað til framtíðar.

Núna er upp runninn 16. maí. Nemendur í framhaldsskólum eru á síðustu metrunum við að klára þessa önn eða sitt nám, þeir sem eru á þeim stað í lífi sínu, og styttist í að nemendur með hvíta kolla, fjólubláa kolla, gráa kolla, alls kyns kolla, sjáist á vappi um borg og bý. Það er gleðilegt. En það er mikil óvissa í þessum spilum. Ráðherra hefur sagt að nú í þessari viku muni hann fá gögn í hendurnar og að á þeim gögnum muni hann byggja sína ákvörðun. Ég bendi á að innritun nemenda lýkur eftir tvær vikur og ég velti fyrir mér hvort nemendur sem ætla (Forseti hringir.) sér að innritast í Fjölbrautaskólann við Ármúla séu meðvitaðir um það að kannski verður enginn Fjölbrautaskóli við Ármúla til næsta haust.