146. löggjafarþing — 66. fundur,  16. maí 2017.

störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Frú forseti. Best að slá því föstu strax að ég tel að það fiskveiðistjórnarkerfi sem við búum við í dag sé í öllum aðalatriðum gott og uppfylli tvær meginkröfurnar sem við verðum að gera til þess, annars vegar sjálfbærar veiðar og sjálfbæra nýtingu á þessari auðlind eins og við best höfum vit á, og hins vegar er hún til þess fallin að hámarka heildararðsemina í þessari atvinnugrein.

Það eru tvær spurningar sem við þurfum að svara varðandi þetta kerfi. Önnur lýtur að veiðigjöldunum, sem kemur ekki þessu máli á Akranesi við, sem ég kem að á eftir, með hvaða hætti við viljum haga afgjaldinu fyrir nýtinguna á auðlindinni; veiðigjaldið eins og það er, veiðigjaldið hærra eða lægra eða eitthvert annað kerfi, þeirri spurningu þurfum við að svara. Síðan þurfum við að svara, og það tengist málinu á Skaganum, hvort og þá með hvaða hætti við ætlum að láta þá byggðafestu halda sem felst í anda fiskveiðistjórnarlaganna og meira að segja beinnar greinar í þeim lögum. Hvernig ætlum við að haga þeim málum?

Nú liggur það fyrir að sú byggðafesta sem við töldum að væri fyrir hendi í þessum lögum, þ.e. með forkaupsrétti sveitarfélaga á aflaheimildum, er ekki fyrir hendi samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Þá verður löggjafinn að svara því: Vill hann að hún sé fyrir hendi og viljum við þá breyta lögunum í þá veru? Svo hitt, vegna þess að byggðafesta varðandi aflaheimildir hefði nú ekki bjargað miklu uppi á Skaga því að þar var enginn að selja neitt, það var bara verið að flytja til vinnsluna: Viljum við koma á einhvers konar byggðafestu á vinnslunni líka?

Þessum spurningum þarf löggjafinn að svara og ég skal taka þátt í umræðu um það með hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur. (Gripið fram í.)