aðgerðir gegn fátækt.
Virðulegur forseti. Bókin Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson kom út árið 1976 og skapaði usla í samfélaginu. Höfundurinn, nærri áttræður, greindi frá æsku sinni, atlæti og bágum kjörum, mikilli fátækt og þeim áhrifum sem þetta hafði á hann sem barn og fullorðinn mann.
Frásagnir Tryggva féllu í grýtta jörð hjá þeim sem hann nefndi til sögunnar, dregnar voru í efa lýsingar hans, sagt að höfundur oftúlkaði upplifun sína á mörgum sviðum. Enn er fátækt áþreifanleg í samfélaginu og enn höfum við tilhneigingu til að gera lítið úr þessum smánarbletti. Við eigum erfitt með að horfast í augu við þessa staðreynd þótt hún blasi við okkur daglega í ýmsum myndum. Þetta eru óhreinu börnin hennar Evu.
Fátækt hefur áhrif á alla sem búa við það hlutskipti og á marga ævilangt, skilur eftir reynslu og ör sem ekki verða afmáð. Mörgum reynist þetta lexía sem þeim tekst að vinna úr með uppbyggilegum hætti, ekki þó öllum. Einhver okkar sem hér starfa hafa upplifað fátækt og lítil efni á eigin skinni og ætti að vera í lófa lagið að leggja allt í breytingar til úrbóta. Aðrir þekkja þetta aðeins af afspurn, telja jafnvel að þetta eigi að vera svona og sé eðlilegt. Þeim er kannski vorkunn. Því viðhorfi megum við aldrei lúta. Fátækt veldur mismunun, elur á ójöfnuði og getur ýtt undir ofbeldi og óeirðir í samfélögum.
Við getum útrýmt fátækt, þetta eru ekki náttúrulögmál. Það sem til þarf er mannúð, að hafna forréttindum, einblína á almannaheill. Við höfum glímt við viðfangsefnið fátækt á Íslandi í áratugi, m.a. á vettvangi löggjafans. Stundum hefur okkur miðað örlítið en aðstæður eru til skammar í dag. Þúsundir barna búa við fátækt í allsnægtasamfélaginu, það er næg atvinna, nægir peningar. Samt hafa hjálparstofnanir vart undan að veita aðstoð.
Aldraðir búa við bágan hag, barnafjölskyldur berjast í bökkum og öryrkjar eru afgangsstærð. (Forseti hringir.) Það eru stjórnvöld sem hafa úrbætur í hendi sér. Við getum gert betur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)