146. löggjafarþing — 66. fundur,  16. maí 2017.

Afbrigði um dagskrármál.

[14:51]
Horfa

Einar Brynjólfsson (P):

Virðulegur forseti. Það er með ólíkindum að þessi mál séu lögð fram svo seint sem raun ber vitni. Ég vil minnast á eitt í þessu máli sérstaklega sem snýr að mínu kjördæmi og einu af umdeildasta máli okkar tíma, fjármögnun Vaðlaheiðarganga. Eins og það er nú góð samgöngubót þá er fúskið sem hefur einkennt fjármögnun þeirra yfirgengilegt. Frá því í upphafi þessa árs hefur legið fyrir að aukafjárveitingu þyrfti til að ljúka þeirri framkvæmd. Þetta frumvarp sem núna á að samþykkja með afbrigðum að verði tekið hér fyrir hefði verið hægt að leggja fram miklu fyrr.