146. löggjafarþing — 66. fundur,  16. maí 2017.

jarðgöng undir Vaðlaheiði.

524. mál
[15:28]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Benedikt Jóhannesson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að þessi framkvæmd og þær ógöngur sem hún hefur lent í séu mjög fátíð og vonandi verður það einsdæmi að þurfi að koma til Alþingis í svipuðum erindagjörðum og ég er hér nú. Ég verð hins vegar að taka undir það með hv. þingmanni að samgöngubætur hafa mjög mikil félagsleg áhrif. Það sem hv. þingmaður víkur að eru öryggisatriði sem felast í því að hafa góðar samgöngur á ýmsum vegum. Ég er alveg sammála hv. þingmanni að það borgar sig mjög oft og er oft auðvelt að finna sterk rök fyrir því að bæta vegi, eins og t.d. þann veg sem þingmaður nefndi. Ég tel hins vegar að það verði ólíklegt að fjármálaráðherra muni bera fram slík frumvörp því að eins og hv. þingmaður veit er vegagerð almennt á forræði samgönguráðherra.