146. löggjafarþing — 66. fundur,  16. maí 2017.

jarðgöng undir Vaðlaheiði.

524. mál
[15:30]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Benedikt Jóhannesson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að við hv. þingmaður séum í raun og veru sammála um meginefni ræðu hans, þ.e. að umferðarslys séu alvarlegt vandamál og okkur beri að reyna að eyða sem flestum hættulegum vegarspottum. En svo ég svari spurningu hans í fyrra andsvari með óyggjandi hætti: Fjármálaráðherra mun ekki koma með frumvörp af því tagi um vegabætur.