áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Virðulegi forseti. Það er einfaldlega þannig að til þess að fá tilskilin réttindi til að geta stýrt þeim bát sem um ræðir þarftu að setjast í ár á skólabekk. Það að ætla að halda í þessi 30 tonna réttindi, sem voru gefin hér hverjum grunnskólanema frá 1955–1983 — þetta var sem sagt möguleiki og þessir menn sem eru úti í samfélaginu sem tóku þetta þá geta farið upp í skipstjórnarskóla og tekið pungapróf í dag og með þeim rökum fengið þessi 30 tonna réttindi. Pungaprófið kennir ekki nægilega mikinn stöðugleika eða neitt slíkt til að taka jafn mikla ábyrgð og það er að lóðsa skemmtiferðarskip inn að höfn, alveg sama hvort þetta sé sólarlagsákvæði eða ekki. Það þarf réttindamann, það þarf að borga honum laun til að leysa þetta vandamál. Þetta vandamál er ekki leyst með löggjöf sem þessari. Hún þarf „actually“ að vera strangari ef eitthvað er.