146. löggjafarþing — 67. fundur,  22. maí 2017.

varamenn taka þingsæti.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Karólína Helga Símonardóttir hefur undirritað drengskaparheit að stjórnarskránni og er boðin velkomin til starfa á Alþingi.

Borist hefur bréf frá Þórunni Egilsdóttur, 5. þm. Norðaust., þar sem fram kemur að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Líneik Anna Sævarsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.