146. löggjafarþing — 67. fundur,  22. maí 2017.

diplómanám þroskahamlaðra í myndlist o.fl.

475. mál
[12:06]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Þetta er mikilvæg fyrirspurn sem hv. þm. Svandís Svavarsdóttir ber hér upp og tengir við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og það sem þar segir um menntun.

Það er staðreynd að fatlað fólk hefur almennt séð styttri og minni menntun en ófatlaðir einstaklingar og það er mikið áhyggjuefni vegna þess að menntun skiptir svo miklu máli til að geta tekið þátt í samfélaginu.

Mig langar því að beina því til hæstv. ráðherra almennt — því að mér fannst það koma fram í máli hans þegar hann svaraði spurningunum að gríðarlega mikið verk er óunnið þegar kemur að menntun fatlaðs fólks. Þó svo að hér sé verið að tala um hana í ákveðnu þröngu samhengi vildi ég nota tækifærið til að víkka þetta út og tala aðeins um menntun fatlaðs fólks almennt því að hér er svo greinilega mjög mikið (Forseti hringir.) verk óunnið og það þrátt fyrir að búið sé að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.