afgreiðsla meiri hluta nefndar á áfengisfrumvarpinu.
Frú forseti. Þegar við í allsherjar- og menntamálanefnd sendum vín í búðir til umsagnar hjá öðrum nefndum vorum við ekki að gera það í einhverju gríni. Við vorum að senda það til velferðarnefndar vegna þess að við töldum hana betur í stakk búna til að kafa ofan í þau lýðheilsulegu sjónarmið sem eru í málinu.
Fyrir vikið tókum við í allsherjarnefnd ekki á okkar fund alla þá umsagnaraðila sem við annars hefðum gert því að þeir mættu á fund velferðarnefndar. Til þeirra athugasemda hefur ekki verið komið til móts við. Því fer fjarri. Þeir hafa verið hafðir að fíflum með því að vera dregnir á fund þingnefndar til þess eins að sjónarmiðum þeirra sem mæla gegn samþykkt þessa máls mætti bara sópa undir teppið. Því að óþægilegur sannleikur á heima þar, að mati þeirra sem vilja brennivín í búðir.