146. löggjafarþing — 68. fundur,  22. maí 2017.

afgreiðsla meiri hluta nefndar á áfengisfrumvarpinu.

[15:21]
Horfa

Gunnar Ingiberg Guðmundsson (P):

Virðulegi forseti. Þetta kom kannski ekki nægilega skýrt fram í máli mínu áðan varðandi áhafnir íslenskra skipa. Það er skýlaus krafa að málið verði dregið aftur inn til umhverfis- og samgöngunefndar þar sem fengnir verða umsagnaraðilar. Það er fyrir neðan allar hellur ef við ætlum að gera svona stórvægilegar breytingar á þessum lögum án þess að fagaðilar komi að því máli. Með fullri virðingu fyrir umhverfis- og samgöngunefnd get ég ekki tekið málefnalega afstöðu til þessa máls ef ég hef engar umsagnir frá fagaðilum. Hins vegar hef ég hringt í fagaðila, m.a. í félögum vélstjóra og stýrimanna, og þeim líst ekki á þetta. Það að það eigi að skrifa þetta frumvarp út og gera að lögum helst í dag og helst í gær er fyrir neðan allar hellur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)