afgreiðsla meiri hluta nefndar á áfengisfrumvarpinu.
Frú forseti. Auðvitað geta öllum orðið á mistök. En það kemur mér á óvart að jafn þingreyndur maður og hv. þm. Birgir Ármannsson skuli leggja það á sig að fara í ræðustól og reyna að mæla þessum vinnubrögðum bót. Það er nú einfaldlega þannig.
Ein af fyrstu og ríkustu skyldum þingnefndar er að fullrannsaka mál, reyna síðan að ná samstöðu um þau ef mögulegt er en afgreiða þau þá út með mismunandi afstöðu og nefndarálitum ef slík samstaða er ekki í boði, en þá helst ekki fyrr en nefndarmenn eru út af fyrir sig sammála um að málið sé fullunnið og fullrannsakað. Hvorugt var til staðar í þessu tilviki. Það segir allt sem segja þarf í máli af þessu tagi sem búið er að senda fleiri en einni þingnefnd til umsagnar og beðið um álit, að rífa það svo út fyrirvaralaust með þessum hætti án þess að minnsta kosti gera þá hinum nefndunum aðvart um að nú liggi á að fá frá þeim álit. Ekkert af þessu var gert. Það er algerlega forkastanlegt. Auðvitað eru þessari breytingar eingöngu til þess (Forseti hringir.) að reyna að berja stjórnarliðið saman, sem var auðvitað með málið í upplausn. Það er verið að reyna að safna sauðunum saman í einn dilk með þessum beitingum. (Forsrh.: Þetta er ekki stjórnarmál.) Það er nú samt þannig, hæstv. forsætisráðherra. Enda er það ævinlega þannig þegar þetta mál ber á góma að þá gerist hæstv. forsætisráðherra órólegur og fer að grípa fram í og roðnar í framan. (Gripið fram í.) Þetta er þvílíkt hugsjónamál. (Gripið fram í: Hver er æstur?)