146. löggjafarþing — 68. fundur,  22. maí 2017.

málefni framhaldsskólanna.

[15:35]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Frú forseti. Mig langar að ræða við hæstv. ráðherra um málefni framhaldsskólanna. Þegar fjármálaáætlunin er skoðuð, sem samþykkt var á þingi í ágúst sl., þar sem hæstv. ráðherra sat sem heilbrigðisráðherra og flokkur hans fór með menntamálaráðuneytið, kemur fram að árið 2021 var gert ráð fyrir að framlög til framhaldsskóla yrðu 31 milljarður og 288 milljónir. En í tillögu að fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir að þetta sama ár verði þessi framlög 1 milljarði og 447 milljónum króna lægri.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að tvennu: Hvað hefur nákvæmlega breyst frá því að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur lögðu fram þessa fjármálaáætlun þar sem því var lofað að stytting framhaldsskólans myndi ekki skila sér í sparnaði á þessu skólastigi heldur myndu fjármunir sem spöruðust renna til að efla þetta skólastig, fyrir utan það að meðreiðarsveinar Sjálfstæðisflokksins eru nú orðnir aðrir?

Í öðru lagi. Hér hefur verið til umræðu sameining tveggja skóla, yfirfærsla á opinberum skóla yfir í einkarekstur sem rökstuddur er með því að hagræða þurfi á framhaldsskólastigi vegna þess sem lagt er til í fjármálaáætlun. Hæstv. ráðherra hefur sagt, að minnsta kosti hef ég heyrt hann segja, að hann taki gagnrýni á samráðsleysi alvarlega. Ég kann að meta það við hæstv. ráðherra. Ég vil því spyrja hann hvort hann telji ekki rétt, í ljósi þess að hér er verið að leggja til stórfelldan niðurskurð frá síðustu fjármálaáætlun, stórar stefnumótandi ákvarðanir, að eiga þá samráð við Alþingi um stefnu um málefni framhaldsskólastigsins áður en slíkar ákvarðanir eru teknar. Það er nokkuð sem við í minni hlutanum erum reiðubúin að gera. (Forseti hringir.)

Að lokum langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um skýringar á þessum niðurskurði framlaga. Eða mun hann vísa allri ábyrgð á formann Hollvinasamtaka Menntaskólans í Reykjavík um þær ákvarðanir?