málefni framhaldsskólanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Ég skal reyna að komast yfir þær á þessum tveimur mínútum.
Hvað hefur breyst í fjármálaáætluninni frá því að hún var samþykkt í ágúst í fyrra? Þó ekki væri nema útgjaldaauki Alþingis á haustmánuðum í fyrra og við fjárlagaafgreiðsluna fyrir árið 2017. Útgjöld voru aukin á milli ára um marga tugi milljarða króna við afgreiðslu fjárlaga í desember. Dettur mönnum í hug að það hafi engin áhrif á önnur plön eða áætlanir stjórnvalda? Það væri alveg með ólíkindum ef viðbætur á hinum ýmsu sviðum í útgjaldaþáttum ríkisins, svo maður tali nú ekki um sérstaklega trygginga- og bótaflokka, hefðu ekki áhrif á umsvif til annars rekstrar. Stærsta einstaka dæmið ef maður horfir inn í framhaldsskólann snýr að því að hagræðingarkrafa á framhaldsskólana, eins og flestan annan rekstur í áætlununum, er aukin úr því sem var í skólakerfinu, úr 0,5% upp í 2%. Þar liggur þetta sérstaklega, sem vigtar verulega þungt inn í.
Ég vil leggja áherslu á það engu að síður að þrátt fyrir allt tal um niðurskurðinn í framhaldsskólunum fer það illa saman að tala um að verið sé að skera þetta langt inn að beini á sama tíma og fram kemur í fjármálaáætluninni að raunútgjöld á nemanda eru að aukast um 3–4%. Seint hefði það verið talinn niðurskurður.