146. löggjafarþing — 68. fundur,  22. maí 2017.

United Silicon.

[15:46]
Horfa

Einar Brynjólfsson (P):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það kom fram að gerðar voru yfir 30 athugasemdir. Það var gert að skilyrði að ráðin yrði bót á öllum þeim athugasemdum. Hins vegar vitum við ekki alveg hvað gerist næst. Haft er eftir starfsmanni United Silicon að hann sé vongóður um að umbæturnar skili árangri, með leyfi forseta:

„Ráðgjafi okkar telur að úrbæturnar eigi að geta takmarkað þessa lykt en það gæti tekið vikur.“

Ég ætla að leyfa mér að spyrja hæstv. ráðherra hversu mikið langlundargeð ráðherrann hefur ef upp úr dúrnum kemur að þær umbætur sem gerðar voru duga ekki til þess að ráða bót á þessari (Forseti hringir.) mengun og þeim subbuskap sem þarna er. Kæmi til greina að rifta samningnum við United Silicon?