146. löggjafarþing — 69. fundur,  23. maí 2017.

samúðarkveðjur til neðri deildar breska þingsins.

[10:30]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Forseti vill tilkynna hv. þingmönnum að hann hefur í morgun sent forseta neðri deildar breska þingsins, John Bercow, samúðarkveðju vegna hinna hryllilegu hryðjuverka sem áttu sér stað í Manchester í gærkvöldi.