146. löggjafarþing — 69. fundur,  23. maí 2017.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Framsóknarflokksins um að 2. þm. Norðvest., Gunnar Bragi Sveinsson, verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson.

Sigurður Páll Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.