146. löggjafarþing — 70. fundur,  24. maí 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[11:30]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Hér kom langt svar og ég varð engu nær um það sem ég spurði um. Getur hv. þingmaðurinn ekki gefið mér nokkra einustu vísbendingu um það í hverju skattahækkanir upp á 334.000 milljónir felast? Hér er reikningur upp á milljón kall á hvert mannsbarn í landinu og það er engin hugmynd um hvaða skattar þetta eru. Ég krefst þess að þingmaðurinn komi og gefi mér einhverja vísbendingu um það, þrátt fyrir allt ógagnsæi og alla galla.