146. löggjafarþing — 71. fundur,  24. maí 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[20:52]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður hafi verið hér við ræðu hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur þar sem hún tíundaði þetta. Ég hef satt best að segja þetta plagg ekki handbært hjá mér eins og er, en það hefur verið unnið með ábyrgum hætti. Okkar sérfræðingur í þingflokknum á þessu sviði er Oddný Harðardóttir og um þetta er full sátt innan okkar þingflokks, við höfum vandað þarna til verka.