146. löggjafarþing — 71. fundur,  24. maí 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[23:02]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf) (andsvar):

Ég deili ekki áhyggjum hv. þingmanns af framtíðarsýn. Ég tek það fram. Mér finnst þetta góð framtíðarsýn og rétt að við stefnum þangað. En varðandi þær upplýsingar sem við fengum hér; enn og aftur, eins og ég sagði var það ekki nægilega skýrt hvað varðar fjármuni til verkefnisins út frá þeim mælikvörðum sem hér voru settir fram. Það var ekki nógu skýrt. En þetta plagg átti að vera stefnumótun og ég átti að meta það og velti upp áhyggjum mínum við ykkur í fjárlaganefnd. Nú stöndum við hér og ræðum það. Það er verkefni okkar í haust, þarnæsta haust og haustið eftir það, að taka á málum af ábyrgð.