fjármálaáætlun 2018--2022.
Herra forseti. Ég held að í drögin að byggðaáætlun sem liggja fyrir vanti eitthvert gagnsæi, eins og Samband íslenskra sveitarfélaga segir, þau séu ekki nægilega vel fram sett. Svo er eitt að setja eitthvað á blað og annað að sjá að fjármagn fylgi. Það komum við væntanlega til með að sjá í haust. Ég hef sagt um sóknaráætlanir landshluta sem eiga að tryggja aðkomu heimamanna að því miður voru þær nú bara settar út af sakramentinu í upphafi síðasta kjörtímabils. Eftir mikið þóf og læti voru settir í þær fjármunir aftur, allt of litlir og ég held því miður allt of litlir enn þá.
Sóknin? Nei. Ég sé hana ekki, hvorki varðandi atvinnufyrirtæki né heilbrigðismálin. Það er auðvitað verið að leggja til ákveðin byggingaráform, sem er rosalega gott því það er mikil þörf á því, en það eitt og sér dugar ekki til. Það hefur komið fram að lítið er eftir til rekstrarstyrkingar í heilbrigðismálum. (Forseti hringir.) Það er það sem við eigum líka að horfa til, ekki tala bara um prósentur og aura. Heilsa og líf eru ekki prósentur.