146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

svör við fyrirspurnum.

[10:38]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Svo háttar til að skrifstofa Alþingis gengur eftir því að fyrirspurnum sé svarað jafnt og þétt allan veturinn og setur sérstakan þunga í þær eftirgrennslanir við þinglokin. Enn höfum við tíma upp á að hlaupa og skrifstofan vonast til þess að fá einhver svör. Það er heimilt að útbýta þingskjölum rafrænt þó að þingið sé farið í hlé og forseti gerir ráð fyrir að það verði gert eftir því sem þurfa þykir.