áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. framsögumanni, Teiti Birni Einarssyni, fyrir að gera grein fyrir frumvarpinu. Það barst frá ráðherra og var kynnt af hálfu hans nokkuð seint, undir lok þess frests sem er til að leggja fram þingmál. Þar var lögð áhersla á að tilgangurinn væri fyrst og fremst sá að auðvelda fiskeldisfyrirtækjum að manna aðstoðarskip o.s.frv. en varla minnst á lóðs- og dráttarbáta í því sambandi. Það kom svo smám saman í ljós í umræðum og við heimsóknir gesta að ágreiningur af hálfu fagfélaga sjómanna var verulegur, þvert ofan í það sem hafði komið fram á umræddri kynningu. Nú hefur þetta frumvarp tekið breytingum, þ.e. það eru komnar breytingartillögur sem gera það að verkum að búið er að fella út allt sem lýtur að lóðs- og dráttarbátum. Þar sem við Vinstri græn sem að þessu komum teljum rétt að auðvelda mönnun aðstoðarskipa við fiskeldi eru þær breytingartillögur sem komu og nefndarálit okkar þannig að þetta er ásættanleg málamiðlun. Ég hvet til þess að þetta verði samþykkt í því formi.